Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð fagnar mikilvægum skrefum stjórnvalda

Viðskiptaráð fagnar samkomulagi Seðlabanka Íslands við Seðlabanka Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. Tvíhliða gjaldeyrisskiptasamningar sem þessi eru mikilvægt fyrsta skref í eflingu trúverðugleika Seðlabanka Íslands og íslenska hagkerfisins. Enn fremur fagnar Viðskiptaráð þeirri tilkynningu að enn frekar verði aukið við aðgang bankans að erlendu lausafé í náinni framtíð.

Vöxtur íslenska bankakerfisins hefur verið mikill og hraður undanfarin ár og því afar mikilvægt að innviðir og stofnanaumgjörð hérlendis taki mið af því. Í kjölfar aukinna lánalína telur Viðskiptaráð skynsamlegt að ríkissjóður leitist eftir erlendri lántöku í samstarfi við Seðlabanka Íslands til að auka gjaldeyrisforða verulega og stórefla styrk Seðlabanka Íslands.

Aðgerðir sem þessar eru ekki einungis mikilvægar til að efla traust á íslenskum fjármálafyrirtækjum heldur einnig hagkerfinu öllu. Þetta er því nauðsynlegt skref í baráttunni gegn verðbólgu og ætti að gera Seðlabanka Íslands kleift að lækka vexti fyrr og hraðar en ella.

Enn fremur fagnar Viðskiptaráð tilkynningu Geirs H. Haarde forsætisráðherra um fyrirhugaðar breytingar á og umbætur á skipulagi Íbúðalánasjóðs. Ráðið tekur undir þau orð forsætisráðherra að með því sé hægt að bæta virkni peningastefnunnar til muna og þar með styrkja framtíðargrundvöll íslensku krónunnar.

Tengt efni

Umsögn um frumvarp til laga um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka

Viðskiptaráð Íslands fagnar áformum um að gengið verði frá sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka sem eru í samræmi við gildandi fjárlög, …
2. maí 2024

Umsögn um frumvarp til laga um Nýsköpunarsjóðinn Kríu

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind áform. Ráðið fagnar að með því sé stigið skref í átt að sameiningu sjóða sem falla undir málefnasvið …
30. apríl 2024

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um Orkusjóð

Viðskiptaráð Íslands telur breytt frumvarp til breytinga á lögum um Orkusjóð til bóta og að með því séu stigin skref í átt að einfalda …
3. maí 2024

Viðskiptaráð fagnar samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn

Viðskiptaráð Íslands fagnar því að ríkisstjórn Íslands hafi óskað eftir formlegu samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) um að koma á …
24. október 2008

Mikilvæg skref til stuðnings nýsköpunar

Viðskiptaráð fagnar þeim aðgerðum sem nýsköpunarráðherra kynnti í lok síðustu viku til að efla nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Nýsköpun er forsenda …
2. desember 2019

Viðskiptaráð fagnar ákvörðun forsætisráðherra

Viðskiptaráð Íslands fagnar ákvörðun Geirs H. Haarde, forsætisráðherra Íslands, um að leita álits hjá óháðum, erlendum fræðimanni á fyrirkomulagi og …
28. mars 2008