Viðskiptaráð Íslands

Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á virðisaukaskatti

Vegna þeirra truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið hefur fjármálaráðuneytið í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem er á gjalddaga á morgun, 5. desember. Sú niðurfelling gildir í eina viku eða til 12. desember 2008.

Tilkynnining fjármálaráðuneytis:

"Samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er 5. desember 2008 gjalddagi virðisaukaskatts vegna uppgjörstímabilsins september og október 2008.

Í 1. mgr. 27. gr. laganna kemur fram að sé virðisaukaskattur ekki greiddur á tilskildum tíma skuli aðili sæta álagi til viðbótar skatti samkvæmt virðisaukaskattsskýrslu eða til viðbótar þeim skatti sem honum bar að standa skil á, sbr. 19. gr. laganna. Sama gildir ef virðisaukaskattsskýrslu hefur ekki verið skilað eða verið ábótavant og virðisaukaskattur því áætlaður eða endurgreiðsla skv. 25. gr. hefur verið of há. Þá skal aðili sæta álagi ef endurgreiðsla skv. 3. og 4. mgr. 42. gr. og 3. mgr. 43. gr. hefur verið of há. Í 6. mgr. 27. gr. laganna kemur fram að fella megi niður álag ef aðili færir gildar ástæður sér til málsbóta og geti skattyfirvöld metið það í hverju tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.

Vegna þeirra truflana sem orðið hafa á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið telur ráðuneytið að gildar ástæður séu til að beita heimild 6. mgr. 27. gr. laga nr. 50/1988, til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjörstímabilið september og október 2008.

Hefur ráðuneytið í dag beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 5. desember 2008 og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til 12. desember 2008."

Tengt efni

Sveigjanleiki í viðurlögum vegna vanskila á staðgreiðslu opinberra gjalda

Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneyti verður viðurlögum vegna vanskila á staðgreiðslu þeirra opinberru gjalda sem eru á gjalddaga í dag ekki …
15. október 2008

Unnið að því að fá frest á greiðslu opinberra gjalda

Vegna erfiðrar lausafjárstöðu margra fyrirtækja hefur Viðskiptaráð, í samvinnu við fleiri aðila, beitt sér fyrir því að hið opinbera veiti frest á …
13. nóvember 2008

Unnið að því að fá frest á greiðslu opinberra gjalda

Vegna erfiðrar lausafjárstöðu margra fyrirtækja hefur Viðskiptaráð, í samvinnu við fleiri aðila, beitt sér fyrir því að hið opinbera veiti frest á …
13. nóvember 2008

Gjaldfrestur á aðflutningsgjöldum og álag vegna staðgreiðslu

Samkvæmt fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu frá því á föstudaginn síðasta þá samþykkti ríkisstjórnin frumvarp fjármálaráðherra um tímabundnar …
17. nóvember 2008

Ekki frekari greiðsludreifing aðflutnings- og vörugjalda

Á síðustu misserum hafa stjórnvöld boðið upp á greiðsludreifingu aðflutnings- og vörugjalda sem úrræði til aðstoðar fyrirtækjum í lausafjárvandræðum. …
11. mars 2011

Frumvarp um að félög geti gert upp í erlendri mynt

Lagt hefur verið fram frumvarp um að fyrirtæki geti sótt um heimild til ársreikningaskrár til að færa uppgjör í erlendri mynt. Heimildin tekur gildi á …
10. desember 2008