Viðskiptaráð Íslands

Morgunverðarfundur: Ólífvænleg fyrirtæki á að selja eða fara með í þrot

Á fundi Viðskiptaráðs í gærmorgun, um áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja, fóru fram margvíslegar umræður. Meðal framsögumanna var Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, en hann fjallaði um samkeppnisaðstæður fyrirtækja í bankakreppu og lagði áherslu á þau áhrif sem yfirtaka banka á fyrirtækjum hefði á samkeppnisaðila þeirra.

Í máli Þórðar kom fram að bankarnir þyrftu að huga meir að samkeppnisáhrifum slíkra aðgerða og þá sérstaklega að halda ekki rekstri ólífvænlegra fyrirtækja gangandi í virkri samkeppni við rekstrarhæf fyrirtæki. Slík fyrirtæki þyrfti að selja hið fyrsta eða þá að bankarnir myndu virða þau lögmál viðskiptalífsins að ólífvænleg fyrirtæki fari í þrot. Með því að tryggja rekstrargrundvöll ólífvænlegra fyrirtækja væru bankarnir að valda verulegum samkeppnisröskunum, enda hefðu flestir markaðir dregist umtalsvert saman frá hruninu og því væri minna pláss en áður fyrir fyrirtæki á þeim mörkuðum. Umframafkastagetu atvinnulífsins þyrfti að laga að þessum samdrætti í eftirspurn.

Ef bankar ætla að halda ólífvænlegum fyrirtækjum gangandi er ljóst að mati Þórðar að þeir vinni gegn umræddri aðlögun á afkastagetu, sem getur á endanum leitt til þess að enn fleiri fyrirtæki lendi í rekstrarerfiðleikum. Þá velti Þórður því jafnframt upp hvort raunhæft væri að bankarnir gætu rekið þessi fyrirtæki betur en fyrri eigendur þeirra.

Ræðu Þórðar má nálgast hér.

Tengt efni

Morgunverðarfundur: Endurskipulagning fyrirtækja er flókið ferli

Á fundi Viðskiptaráðs í gærmorgun um áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja fjallaði Ásmundur Stefánsson, forstjóri Landsbankans, um áherslur í …
27. nóvember 2009

Gagnleg umræða um áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja

Í morgun hélt Viðskiptaráð Íslands fjölsóttan morgunverðarfund á Grand Hótel til að ræða áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja og leiðir til …
26. nóvember 2009

Morgunverðarfundur: Áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja

Fjármálastofnanir ráða nú miklu um landslag reksturs á Íslandi, í gegnum endurskipulagningu á skuldum og rekstri fjölda fyrirtækja á þeirra höndum. …
25. nóvember 2009

Morgunverðarfundur: Dugnaðarleysi og ákvörðunarfælni leiðir til stöðnunar

Endurskipulagning eignarhalds fyrirtækja var umfjöllunarefni Finns Sveinbjörnssonar, forstjóra Arion banka, á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs í …
27. nóvember 2009

Áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja

Fjármálastofnanir ráða nú miklu um landslag reksturs á Íslandi, í gegnum endurskipulagningu á skuldum og rekstri fjölda fyrirtækja á þeirra höndum. …

Morgunverðarfundur: Mörg fyrirtæki ganga betur en upphaflega var áætlað

Birna Einarsdóttir, forstjóri Íslandsbanka, fjallaði um rekstrargrunn nýrra banka á fundi Viðskiptaráðs í gærmorgun um áhrif banka á rekstrarumhverfi …
27. nóvember 2009