Viðskiptaráð Íslands

EORI: breytt fyrirkomulag tollgæslu innan ESB

Undanfarna mánuði hafa ákveðnar breytingar tekið gildi innan ESB sem varða inn- og útflutning vara til og frá aðildarríkjum sambandsins. Þessar breytingar byggja á reglugerðum ESB nr. 648/2005 og 187/2006, en með þeim hefur verið komið á nýju kerfi innan sambandsins til að tryggja öryggi tollgæslu. Hið nýja kerfi er iðulega nefnt EORI (Economic Operators Registration and Identification System) og felur m.a. í sér að frekari kröfur eru gerðar á upplýsingaskyldu.

Þar sem EORI kerfið varðar tollabandalag ESB þá fellur það ekki undir gildissvið EES-samningsins og eru EFTA ríkin því almennt ekki aðilar að kerfinu. Þrátt fyrir það ætti EORI kerfið ekki að setja íslenskum útflutningsfyrirtækjum skorður þegar kemur að útflutningi til ESB ríkja, að öðru leyti en það að þau verða frá og með 1. febrúar næstkomandi beðin um EORI númer móttakanda vörunnar. EORI númerið gefur til kynna að móttakandi vörunnar sé viðurkenndur rekstraraðili (Authorised Economic Operator) og slíkir aðilar framfylgja einfaldari ferlum í samskiptum við tollyfirvöld aðildarríkja.

Athygli Viðskiptaráðs hefur verið vakin á því að hið nýja kerfi hefur í einhverjum tilvikum valdið íslenskum útflutningsfyrirtækjum vandkvæðum. Miklu skiptir að slíkt verði leyst með skjótum hætti og eru aðildarfélög ráðsins því beðin að hafa samband sem fyrst ef breytingarnar eru á einhvern hátt að hefta eða tefja útflutning til Evrópusambandsins.

Samkvæmt upplýsingum Viðskiptaráðs eru flutningafyrirtæki, t.a.m. Eimskip, Samskip, Icelandair Cargo, DHL og TVG-Zimsen, farin að gera ráðstafanir vegna þessa kerfis m.a. með því að skrá EORI númer fjölda móttakenda innan ESB. Rétt er að taka það fram að þegar búið að er að skrá EORI númer á tiltekinn móttakanda þá er það komið í eitt skipti fyrir öll. Frekari upplýsingar veita útflutnings- og/eða tolladeildir ofangreindra fyrirtækja.

Frekari upplýsingar um innleiðingu kerfisins í aðildarríkjum ESB má nálgast hér:

Upplýsingar um kerfið má nálgast hér:

Þá eru jafnframt handhægar upplýsingar á heimasíðu breskra tollyfirvalda:

Nánar um EORI númer:

  • EORI númer samanstendur af: landsnúmeri, virðisaukaskattsnúmer (VAT number) viðkomandi móttakanda og númerið er mismunandi langt eftir löndum, t.d. er Frakkland með sextán stafi.
  • Tekur til allra vara sem fara inn til Evrópubandalagsins, skiptir ekki máli hvort um sé að ræða DDU eða DDP skilmála, T1 tollaskjal eða tollafgreiðslu.
  • Vara sem fer ekki inn til Evrópubandalagsins, t.d. vara á leið til Asíu, þarf ekki á EORI númeri að halda þó svo að hún fari í gegnum Evrópu á leið sinni á áfangastað.
  • EORI númerin tóku gildi í júní 2009 en í Hollandi hefst innleiðingin frá og með 1. febrúar 2010. Frá þeim tima verður að hafa EORI númer til að geta flutt vöru innan Evrópu annað hvort tollaða eða á transit skjali (T1).

Tengt efni

Umsögn um áform um gerð lagafrumvarps til breytinga á lögum um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir

Umsögn Viðskiptaráðs um áform um gerð lagafrumvarps til breytinga á lögum nr. 96/2023 um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS2-kerfið)
14. febrúar 2024

Umsögn um frumvarp til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir

Sameiginleg umsögn Viðskiptaráðs, SA, SAF, SFS og SVÞ um frumvarp til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (þskj. 639 í 543. máli)
7. desember 2023

EORI kerfi ESB

Síðustu vikur og mánuði hefur Viðskiptaráð unnið að því að meta hvort og þá hversu mikil áhrif nýlegt EORI kerfi ESB hefur á íslensk fyrirtæki. Í …

Breytt ferli upprunavottorða

Fyrir skömmu gaf Viðskiptaráð út drög að leiðbeiningum fyrir breytt ferli við útgáfu upprunavottorða í samræmi við leiðbeiningar …
18. mars 2013

Frumvarp um breytingu á tollalögum

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á tollalögum, lögum um …
10. desember 2013

Bindandi álit Tollstjóra

Síðustu vikur og mánuði hafa félagsmenn talsvert komið að máli við starfsfólk Viðskiptaráðs vegna tollamála. Sum hver hafa lent í að vörur fara í …
3. júlí 2012