Viðskiptaráð Íslands

Atvinnulífið á Austurlandi í brennidepli

Viðskiptaráð hélt opinn fund á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl sl. um stöðu og horfur í atvinnulífi á Austurlandi. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, hélt framsögu og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs stýrði pallborðsumræðum. Hátt í 80 gestir sóttu fundinn og líflegar umræður sköpuðust.

Viðskiptaráð hélt opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum, fimmtudaginn 9. apríl sl. og sóttu um 80 manns fundinn. Fundurinn bar yfirskriftina Handan þokunnar, staða og horfur í atvinnulífi á Austurlandi.

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs opnaði fundinn með stuttri yfirferð um Viðskiptaráð.

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, tók svo við og hélt erindi um stöðu og horfur í efnahagslífinu á Austurlandi. Þar fór hann yfir helstu kennitölur fjórðungsins, tækifæri til frekari verðmætasköpunar og þær áskoranir sem atvinnurekendur á Austurlandi standa frammi fyrir gagnvart hinu opinbera.

Eftir erindi Ragnars hófust líflegar umræður í pallborðinu undir stjórn Björns Brynjúlfs. Í pallborðinu voru:

  • Auður Vala Gunnarsdóttir (Blábjörg)
  • Hlöðver Hlöðversson (Alcoa)
  • Kristján Ingimarsson (Kaldvík)
  • Gunnþór Ingvason (Síldarvinnslan)

Við þökkum Austfirðingunum fyrir góðan fund og skemmtilega heimsókn á Austurland.

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Berglind Harpa Svavarsdóttir, Lísbet Sigurðardóttir og Auður Vala Gunnarsdóttir
Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs
Líflegar pallborðsumræður á fundinum
Þétt var setið á fundinum en það var varla einn stóll laus.
Fundargestir gerðu sér glaðan dag að fundi loknum.

Tengt efni

Fjármálaráðherra ekki svarað erindi Viðskiptaráðs ári síðar

Viðskiptaráð sendi fyrir einu ári bréf til fjármála- og efnahagsráðherra varðandi tvísköttun á hlutdeildarskírteinum fyrirtækja, sem dregur úr …
13. maí 2026

Tölustafaeinkunnir, samræmd próf og fækkun borgarfulltrúa meðal vinsælustu mála

Hógvær hækkun gjalda, aukin áhersla á grunnfög, tryggt aðgengi að bílastæðum og samræmt námsmat við lok grunnskólagöngu eru þau mál sem njóta mests …
11. maí 2026

Björn Brynjúlfur gestur í Þjóðmálum

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs var gestur í hlaðvarpinu Þjóðmálum 1. maí sl.
4. maí 2026

Upptaka af Kosningafundi Viðskiptaráðs í Iðnó

Kosningafundur Viðskiptaráðs fór fram í Iðnó 29. apríl 2026 með oddvitum flokkana í Reykjavík. Pallborðsumræðum var skipt upp í tvo hluta. Fyrst voru …
30. apríl 2026

Kosningapróf Viðskiptaráðs: hvar stendur þú?

Viðskiptaráð hefur gefið út kosningapróf þar sem kjósendur geta séð hvaða framboði í Reykjavíkurborg þeir standa næst í lykilmálum og verkefnum …
30. apríl 2026

Tanya Zharov nýr stjórnarformaður HR

Tanya Zharov var í dag kjörin stjórnarformaður Háskólans í Reykjavík og Svafa Grönfeldt varaformaður á aðalfundi skólans. Á fundinum ávarpaði formaður …
29. apríl 2026