Viðskiptaráð Íslands

Eftirlitsmenning á Íslandi

Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur kannaði nýlega eftirlitsmenningu á Íslandi. Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar á morgunverðarfundi þann 16. apríl milli klukkan 08:30 og 10:00 á Grand Hótel. Húsið opnar 08:00.

Skráning er neðst á síðunni undir þessum hlekk.

Í könnuninni var meðal annars spurt um hvort sá tími sem taki fyrirtæki að framfylgja reglum sé íþyngjandi eða ekki, hvernig samráði við fyrirtæki er háttað, byrðar af skriffinsku, um sanngirni reglna og fleira.

Könnunin verður samdægurs aðgengileg á vefnum, meðal annars á vef Viðskiptaráðs.

Dagsetning: Þriðjudagurinn 16. apríl
Klukkan: 8:30 - 10:00
Hvar: Grand Hótel
Salur: Háteigur

Erindi:

Sigurður Örn Guðleifsson, formaður ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur, kynnir niðurstöðurnar
Ania Thiemann, verkefnisstjóri samkeppnismats OECD
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar
Heiðrún Björk Gísladóttir, verkefnastjóri á samkeppnishæfnissviði Samtaka atvinnulífsins.

Pallborðsumræður:

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi
Heiðrún Björk Gísladóttir
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins
Sigurður Örn Guðleifsson

Gunnar Dofri Ólafsson, lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, stýrir fundi og pallborði.

Tengt efni

Samkeppnishæfni Íslands 2025

Morgunfundur um niðurstöður nýrrar úttektar IMD á samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegum samanburði. Fundurinn fer fram fimmtudaginn 18. júní 2025.
18. júní 2025

Eftirlitsmenning á Íslandi

Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur kannaði nýlega eftirlitsmenningu á Íslandi. Niðurstöður könnunarinnar verða kynntar á morgunverðarfundi …
16. apríl 2019

Tölum um tilnefningarnefndir

Opinn morgunfundur IcelandSIF, Nasdaq Iceland, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs
21. mars 2023

Morgunverðarfundur: Inngrip stjórnvalda á mörkuðum

Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins standa að morgunverðarfundi um inngrip stjórnvalda á mörkuðum á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 26. …
26. apríl 2016

Kynning á skýrslu Alþjóðamálastofnunar um aðildarviðræður Íslands við ESB

Mánudaginn 7. apríl kl. 8.15 - 11.30 fer fram kynning á skýrslu Alþjóðamálastofnunar um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Skýrslan var …
7. apríl 2014

Morgunverðarfundur um inngrip stjórnvalda á mörkuðum

Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins standa að morgunverðarfundi um inngrip stjórnvalda á mörkuðum á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 26. …
20. apríl 2016