Hópur nemenda við Verzlunarskóla Íslands kom í heimsókn til Viðskiptaráðs í vikunni. Þar fengu nemendurnir kynningu frá Ragnari Sigurði Kristjánssyni, hagfræðingi Viðskiptaráðs.

Nemendurnir eru í valáfanga sem heitir Peningarnir sigra heiminn; áfangi í sögu fjármála og efnahagslífs eftir samnefndri bók Niall Ferguson, en í henni er m.a. fjallað um það hvernig fjármál koma við sögu í helstu atburðum mannkynssögunnar.
Í heimsókninni fengu nemendurnir að kjósa um umræðuefni úr nýlegum útgáfum Viðskiptaráðs og völdu að ræða olíuleit á Drekasvæðinu og húsnæðismál. Þá var einnig farið yfir stöðu menntamála í kjölfar nýrrar PISA-könnunar.
Að lokinni kynningu afhenti Lilja Rún Sigurjónsdóttir, nemandi í valáfanganum, Ragnari þakklætisvott fyrir kynninguna.
Ljóst er að þarna eru á ferðinni nemendur sem eiga framtíðina fyrir sér og þakkar Viðskiptaráð þeim fyrir komuna. Ráðið vill jafnframt koma á framfæri þökkum til Björns Jóns Bragasonar, kennara áfangans, fyrir að eiga frumkvæði að því að skipuleggja heimsóknina sem er orðið að föstum lið en þetta er í þriðja sinn sem nemendahópur áfangans heimsækir ráðið.