Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð verðlaunar Verzlunarskólastúdenta

Tinna Björg Jóhannsdóttir og Ásta Dís Ingimarsdóttir hlutu viðurkenningu Viðskiptaráðs fyrir framúrskarandi námsárangur á stúdentsprófi.

Guðrún Inga Sívertsen, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands, ásamt verðlaunahöfunum Tinnu Björgu Jóhannsdóttur (til vinstri) og Ástu Dís Ingimarsdóttur (til hægri).

Viðskiptaráð hefur í gegnum tíðina verðlaunað stúdenta sem útskrifast með láði frá viðskiptasviði og alþjóðasviði Verzlunarskóla Íslands. Útskriftarathöfn skólans fór fram laugardaginn 23. maí síðastliðinn og hlutu eftirtaldir nemendur viðurkenningu Viðskiptaráðs fyrir framúrskarandi námsárangur á stúdentsprófi:

  • Tinna Björg Jóhannsdóttir, fyrir bestan árangur í viðskiptagreinum á viðskiptalínu.
  • Ásta Dís Ingimarsdóttir, fyrir bestan árangur í alþjóðagreinum á alþjóðabraut.

Í verðlaun fengu þær eintök af hinu klassíska riti Hagfræði í hnotskurn eftir Henry Hazlitt og hátíðarritinu Viðskiptaráð Íslands í 100 ár, en Guðrún Inga Sívertsen skólastjóri Verzlunarskólans annaðist afhendingu verðlaunanna fyrir hönd Viðskiptaráðs. Fyrrnefnda bókin kom út árið 1946 en var fyrst gefin út í íslenskri þýðingu Haraldar Johannessen árið 2000. Bókin var nýlega endurútgefin að frumkvæði Rannsóknarmiðstöðvar um samfélags- og efnahagsmál og hefst inngangur hennar á tilvitnun í ritið sem dregur saman efni bókarinnar í hnotskurn: „Hagfræðin felst í því að líta ekki aðeins á skammtímaáhrif stefnu eða ákvarðana heldur einnig á langtímaáhrifin, og að skoða afleiðingarnar ekki aðeins fyrir einn hóp heldur alla hópa“. Þessi orð eiga jafn vel við í dag og þau gerðu fyrir 80 árum, en bókin fjallar auk þess um ýmsar hagfræðilegar ranghugmyndir sem sífellt skjóta upp kollinum í þjóðfélagsumræðunni.

Viðskiptaráð óskar Tinnu og Ástu innilega til hamingju með árangurinn og velfarnaðar í framtíðinni.

Tengt efni

Árni og Hildur nýir heiðursfélagar Viðskiptaráðs

Á Viðskiptaþingi voru útnefndir tveir nýir heiðursfélagar Viðskiptaráðs, þau Árni Árnason og Hildur Petersen. Þann heiður fá þeir sem hafa lagt …
17. febrúar 2026

Menntun er fjársjóður - hátíðarræða við brautskráningu frá HR

Laugardaginn 21. júní útskrifuðust 697 nemendur frá Háskólanum í Reykjavík. Í tilefni brautskráningarinnar hélt Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi og …
24. júní 2025

Nemendur í Verzló heimsóttu Viðskiptaráð

Hópur nemenda við Verzlunarskóla Íslands kom í heimsókn til Viðskiptaráðs í gær. Þar fengu nemendurnir kynningu á ráðinu frá Birni Brynjúlfi …
19. febrúar 2025

Viðskiptaráð verðlaunar Verzlunarskólastúdenta

Tinna Björg Jóhannsdóttir og Ásta Dís Ingimarsdóttir hlutu viðurkenningu Viðskiptaráðs fyrir framúrskarandi námsárangur á stúdentsprófi.
1. júní 2026

Viðskiptaráð verðlaunar útskriftarnema í HR

Viðskiptaráð Íslands verðlaunaði útskriftarnemendur við útskrift HR sem fram fór laugardaginn 16. júní s.l. Viðskiptaráð hefur verðlaunað nemendur með …
18. júní 2018

Viðskiptaráð verðlaunar útskriftarnema í HR

Sjö útskriftarnemar úr Háskólanum í Reykjavík tóku við viðurkenningu frá Viðskiptaráði Íslands við útskriftarathöfn sem fram fór laugardaginn 20. júní …
26. júní 2020