Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð styrkir þrjá afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Arnar Ágúst Kristjánsson, Hildur Þóra Hákonardóttir og Jón Valur Björnsson. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð 1.500.000 kr.

Arnar Ágúst Kristjánsson, Hildur Þóra Hákonardóttir og Jón Valur Björnsson hljóta námsstyrk úr menntasjóði Viðskiptaráðs á árinu 2026.

Árlega veitir Menntasjóður Viðskiptaráðs námsstyrki til íslenskra nemenda í framhaldsnámi í atvinnulífstengdum greinum á háskólastigi. Námsstyrkjum úr Menntasjóði Viðskiptaráðs er einkum ætlað að mæta kostnaði vegna skólagjalda og rannsóknarnáms og eru þeir veittir vegna framhaldsnáms í greinum sem tengjast atvinnulífinu og stuðla að framþróun þess.

Auglýst var eftir umsóknum í ársbyrjun 2026 og var umsóknarfresturinn til og með 25. janúar 2026. Styrkþegar ársins voru svo tilkynntir á Viðskiptaþingi 12. febrúar 2026, en hvert þeirra hlaut námsstyrk að upphæð 1.500.000 kr.

Styrkþegar úr Námsstyrkjasjóði Menntasjóðs Viðskiptaráðs árið 2026:

  • Arnar Ágúst Kristjánsson, doktorsnemi við tölvunarfræði í Cambridge University
  • Hildur Þóra Hákonardóttir, framhaldsnemi í vélaverkfræði við Imperial College London
  • Jón Valur Björnsson, framhaldsnemi í gagnavísindum við Stanford University

Valnefnd Námsstyrkjasjóðs valdi styrkþegana úr stórum hópi umsækjenda, en nefndina skipa þau dr. Ari Kristinn Jónsson, forstjóri AwareGO, dr. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, fyrrum forstjóri Actavis á Íslandi og dr. Magnús Þór Torfason, prófessor og deildarforseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands.

Viðskiptaráð óskar styrkþegum innilega til hamingju með styrkina en hér fyrir neðan má sjá stuttar myndbandskveðjur frá styrkþegunum þremur.

Tengt efni

Opið fyrir umsóknir í Menntasjóð VÍ

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 25. janúar 2026.
5. janúar 2026

Viðskiptaráð styrkir fjóra afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Brimar Ólafsson, Hildur Hjörvar, Kári Rögnvaldsson og Svala Sverrisdóttir. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð 1.000.000 kr.
18. febrúar 2025

Opið fyrir umsóknir í Menntasjóð VÍ

Opið er fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2025.
18. desember 2024

Viðskiptaráð styrkir afreksnema á erlendri grundu

Styrkþegar í ár eru Gunnar Þorsteinsson, Helga Kristín Ólafsdóttir, Ísak Valsson og Vigdís Gunnarsdóttir. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð …
24. febrúar 2023

Styrkveiting úr Menntasjóði Viðskiptaráðs 2022

Styrkþegar í ár eru Anton Óli Richter, Esther Hallsdóttir, Guðrún Höskuldsdóttir og Njáll Skarphéðinsson. Hvert þeirra hlýtur styrk að upphæð …
23. maí 2022

Ert þú í framhaldsnámi erlendis?

Nú er opið fyrir umsóknir um námsstyrki úr Menntasjóði Viðskiptaráðs Íslands (MVÍ). Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2023.
29. nóvember 2022