Viðskiptaráð Íslands

Árni og Hildur nýir heiðursfélagar Viðskiptaráðs

Á Viðskiptaþingi voru útnefndir tveir nýir heiðursfélagar Viðskiptaráðs, þau Árni Árnason og Hildur Petersen. Þann heiður fá þeir sem hafa lagt sérstaklega mikið af mörkum í þágu viðskiptafrelsis og framfara í atvinnulífinu.

Á Viðskiptaþingi var tilkynnt um skipan tveggja nýrra heiðursfélaga Viðskiptaráðs, en að þessu sinni hljóta nafnbótina tveir einstaklingar sem hafa lagt sín lóð á vogarskálar, hvort tveggja til viðskiptafrelsis og framfara og til Viðskiptaráðs í gegnum tíðina, þau Árni Árnason og Hildur Petersen.

Samkvæmt 27. gr. laga Viðskiptaráðs er stjórn ráðsins heimilt að skipa heiðursfélaga Viðskiptaráðs Íslands. Til þeirrar nafnbótar geta þeir unnið sem hafa lagt sérstaklega mikið af mörkum í þágu viðskiptafrelsis og framfara í atvinnulífinu.

Árni Árnason

Árni hefur verið virkur í íslensku viðskiptalífi um áratugaskeið. Hann var hagfræðingur Viðskiptaráðs frá 1974-1979, þá Verzlunarráðs, og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs frá 1979 til 1987. Eftir farsælan feril sinn innan Viðskiptaráðs hefur hann gengt ýmsum trúnaðarstörfum innan ráðsins, þ.á.m. í kjörnefnd ráðsins. Árni hefur verið framkvæmdastjóri Árvíkur frá árinu 1991.

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, Árni Árnason og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs á aðalfundi.

Hildur Petersen

Hildur er frumkvöðull á ýmsum sviðum og hóf þátttöku í viðskiptalífinu árið 1978. Hún stýrði ljósmyndafyrirtækinu Hans Petersen í rúm tuttugu ár, var stjórnarformaður SPRON og ÁTVR. Hún er fyrsta konan sem var kjörin í stjórn Viðskiptaráðs árið 1990, fyrsta konan í stjórn banka árið 1987 og fyrsta konan á Íslandi til að skrá fyrirtæki á verðbréfamarkað árið 1999.

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, og Hildur Petersen á Viðskiptaþingi.

Viðskiptaráð óskar nýjum heiðursfélögum ráðsins til hamingju með nafnbótina.

Tengt efni

Ný stjórn Viðskiptaráðs kjörin

Úrslit formanns- og stjórnarkjörs fyrir tímabilið 2026-2028 voru kynnt á aðalfundi Viðskiptaráðs, sem fram fór í dag. Andri Þór Guðmundsson var …
10. febrúar 2026

Átján fyrirmyndarfyrirtæki í stjórnarháttum hljóta viðurkenningu

Átján fyrirtæki hlutu viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum á föstudaginn …
26. ágúst 2024

Ný stjórn Viðskiptaráðs Íslands

Úrslit formanns- og stjórnarkjörs fyrir tímabilið 2022-2024 voru kynnt á aðalfundi Viðskiptaráðs sem fram fór í morgun.
10. febrúar 2022

Nýir hagfræðingar hjá Viðskiptaráði

Elísa Arna Hilmarsdóttir og Gunnar Úlfarsson skipa nýtt hagfræðiteymi Viðskiptaráðs
17. desember 2021

Viðskiptaráð og Vilhjálmur Árnason hljóta Frelsisverðlaun

Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) veitti Viðskiptaráði og Vilhjálmi Árnasyni þingmanni Frelsisverðlaun Kjartans Gunnarssonar fyrir árið …
12. júní 2015

Nýr heiðursfélagi

Á aðalfundi Viðskiptaráðs 13. febrúar var Einar Sveinsson útnefndur heiðursfélagi Viðskiptaráðs Íslands
20. febrúar 2020