Viðskiptaráð Íslands

Ragnar ræddi stöðu RÚV og fjölmiðlamarkaðarins í Spursmálum

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, ræddi stöðu einkarekinna fjölmiðla og frumvarpsdrög um RÚV í Spursmálum. Hann sagði rót vandans liggja í skekktu samkeppnisumhverfi og að taka ætti RÚV af auglýsingamarkaði.

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, í Spursmálum

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, var gestur í Spursmálum á mbl.is síðastliðinn föstudag. Hann ræddi stöðuna á fjölmiðlamarkaðnum ásamt Páli Ásgrímssyni, aðallögfræðingi Sýnar.

Ragnar sagði rót vandans á fjölmiðlamarkaði vera skekkjuna sem staða RÚV skapar. RÚV er eini ríkismiðill Norðurlanda sem bæði fær opinber framlög og selur auglýsingar. Hlutdeild RÚV í tekjum á fjölmiðlamarkaði er 27%, en meðaltalið á Norðurlöndunum er 10%.

Í þættinum fjallaði Ragnar um þær fyrirhuguðu breytingar sem gera á á stuðningi við einkarekna fjölmiðla og það óheilbrigða samband sem slíkt fyrirkomulag skapar. Jafnframt benti hann á að stuðningskerfinu hefði aldrei verið ætlað að vera varanlegt og það væri plástur á stærra vandamál. Í því samhengi benti Ragnar á tillögur Viðskiptaráðs um afnám þessa stuðnings samhliða brotthvarfi RÚV af auglýsingamarkaðnum, en það væri liður í að leiðrétta samkeppnisstöðuna á fjölmiðlamarkaði.

Þáttinn má sjá í heild á mbl.is og stutt myndskeið úr honum má sjá hér fyrir neðan.

Tengt efni

Einkamiðlar verða háðir velgengni RÚV

Viðskiptaráð fagnar því að lagakvöð um lágmarksfjölda rása RÚV verði afnumin en gerir alvarlegar athugasemdir við að hluti auglýsingatekna RÚV renni …
13. október 2026

Vanti hvata til atvinnuþátttöku í örorkubótakerfinu

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs Íslands, fór yfir nýja úttekt ráðsins á örorkubótakerfinu í Bítinu á Bylgjunni.
26. maí 2026

Björn Brynjúlfur í viðtali á Samstöðinni

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, var gestur Gunnars Smára Egilssonar á Samstöðinni á dögunum. Þar ræddu þeir meðal annars …
23. maí 2026

Björn Brynjúlfur gestur í Þjóðmálum

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs var gestur í hlaðvarpinu Þjóðmálum 1. maí sl.
4. maí 2026

Myndband: ETS-kerfið

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, fjallar hér um hvernig ETS-kerfið virkar og hvaða áhrif það mun hafa á samkeppnisstöðu …
16. mars 2026

Verðbólgan heimatilbúinn vandi

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, var gestur í Spursmálum á dögunum. Í þættinum var farið m.a. farið yfir stöðu …
20. janúar 2026