Viðskiptaráð Íslands

Takk Austurland

Viðskiptaráð hélt austur og heimsótti fjölda fyrirtækja um allt Austurland í tveggja daga ferð. Fjórir starfsmenn ráðsins fóru austur og heimsóttu Síldarvinnsluna, Eskju, Kaldvík, Mjóeyri, Alcoa, Launafl og Brúnás.

Magnús Sigurbjörnsson, starfandi samskiptastjóri, Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur, Vigdís Diljá Óskarsdóttir, samskiptastjóri Alcoa, Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri í heimsókn í Alcoa.

Viðskiptaráð fór ekki bara á Austurland til þess að halda opinn fund heldur heimsótti ráðið fjölda fyrirtækja í tveggja daga heimsókn okkar um landið. Við heimsóttum Síldarvinnsluna, Eskju, Kaldvík, Mjóeyri, Alcoa, Launafl og Brúnás ásamt því að kíkja ofan í Vök og að borða hjá Aski Pizzeria. Ráðið dvaldi á Gistihúsinu (Lake Hotel) sem er eitt af fallegri hótelum á svæðinu. Í heimsóknunum fengum við að kynnast rekstri fyrirtækjana og þeirra áskorunum í dag sem voru ýmis konar.

Hér að neðan má nálgast nokkrar myndir af heimsóknum okkar og þökkum Austfirðingum fyrir góðar móttökur og frábært veður.

Heimsókn í Síldarvinnsluna þar sem við fengum túr um vinnsluna sjálfa.
Heimsókn á skrifstofu Síldarvinnslunnar þar sem Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri SVN tók vel á móti okkur.
Heimsókn á Mjóeyri.
Heimsókn í Kaldvík.
Stund milli stríða
Fengum góðar móttökur í Launafl.

Tengt efni

Atvinnulífið á Austurlandi í brennidepli

Viðskiptaráð hélt opinn fund á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl sl. um stöðu og horfur í atvinnulífi á Austurlandi. Ragnar Sigurður Kristjánsson, …
15. apríl 2026

Gullkista útflutnings á Austurlandi

Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs fjallar um ferð Viðskiptaráðs á Austurland og hvernig tækifærin á Austurlandi leynast í …
16. apríl 2026

Handan þokunnar - Staða og horfur í atvinnulífi á Austurlandi

Viðskiptaráð heldur opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl kl 17:00.
9. apríl 2026

Handan þokunnar - fundur á Egilsstöðum

Viðskiptaráð heldur opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl kl 17:00. Auður Vala Gunnarsdóttir hjá Blábjörg, Hlöðver Hlöðversson …
1. apríl 2026

Fullt út úr dyrum í Drift EA

Viðskiptaráð stóð fyrir opnum fundi í síðustu viku hjá Drift EA á Akureyri. Frábær mæting var á fundinn en um 110 manns mættu til fundarins og var …
27. nóvember 2025

Umsögn um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga

Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands (hér eftir samtökin) þakka fyrir tækifærið til að fá að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Samtökin hafa …
30. nóvember 2023