Viðskiptaráð Íslands

Útborgunardagurinn er í dag

Útborgunardagurinn 2026 er í dag, þann 28. júní. Frá þessum degi byrjar starfsmaður að vinna fyrir útborguðum launum, en frá áramótum þar til nú hefur hann unnið fyrir sköttum, réttindum og lífeyrissparnaði.

Í dag byrjar starfsmaður á meðallaunum að vinna fyrir launum sem enda í hans vasa en fram að deginum í dag hefur hann unnið fyrir sköttum, lífeyrisréttindum og öðrum kjarasamningsbundnum gjöldum. Þetta er niðurstaða úttektar Viðskiptaráðs á launafleygnum svokallaða, sem er mismunurinn á launakostnaði vinnuveitenda og útborguðum launum starfsmanns. Þetta er í þriðja sinn sem ráðið framkvæmir úttektina, en dagurinn færist aftur um einn dag miðað við niðurstöður síðustu tveggja ára.

Helmingur fer í annað en útborguð laun

Kostnaður vinnuveitanda við að greiða starfsmanni 826 þúsund krónur í mánaðarlaun, sem voru miðgildi launa hjá fólki í fullu starfi árið 2025, nemur 1,2 milljónum króna. Eftir skatt, útsvar og tekjuskatt auk lífeyrisgreiðslna fær starfsmaðurinn síðan 596,6 þúsund krónur útborgaðar. Af launakostnaði fyrirtækja fer því tæpur helmingur í skatta, lífeyrisgreiðslur og önnur réttindi.

Umreiknað í fjölda daga fæst sú niðurstaða að fyrstu 178 daga þessa árs hefur starfsmaður unnið fyrir öðru en útborguðum launum. Þannig má segja að frá og með deginum í dag byrji starfsmaður að vinna fyrir útborguðum launum en að hingað til hafi hann unnið fyrir sköttum, réttindum og lífeyrisgreiðslum.

Birta mætti launaseðilinn í heild

Meirihluti launafleygsins fellur á fyrirtækið, eða um 60%. Þar vega þyngst mótframlag í lífeyrissjóð, tryggingagjald og orlof. Um 40% falla síðan á starfsmanninn í formi tekjuskatts, útsvars og lífeyrissparnaðar. Allir þessir kostnaðarliðir lækka útborguð mánaðarlaun. Þar skiptir ekki máli hvort þeir séu greiddir af fyrirtækinu eða starfsmanninum.

Viðskiptaráð hvetur fyrirtæki til að uppfæra launaseðla þannig að allur launafleygurinn sé þar sýnilegur. Með þeim hætti getur starfsfólk séð alla liði sem valda því að útborguð laun þeirra lækka, sem eykur gagnsæi og traust. Þá mættu fyrirtæki einnig sundurliða útsvar sérstaklega svo starfsfólk sjái skiptingu skattgreiðslna á milli ríkis og sveitarfélaga.

Framsetning launaseðla er frjáls á Íslandi, svo lengi sem ákvæði kjarasamninga um upplýsingagjöf eru uppfyllt, svo vinnuveitendur geta gert þessa breytingu í dag.

Mörg tækifæri til að flýta útborgunardeginum

Launafleygurinn samanstendur af sköttum, lífeyrisgreiðslum og ýmsum réttindum. Tækifæri eru til að draga úr umfangi eftirfarandi flokka:

  • Lækkun tekjuskatts: Lækkun tekjuskatts um 2 prósentustig myndi hækka útborguð laun um 15.900 kr. á mánuði.
  • Lækkun tryggingagjalds: Lækkun tryggingagjalds um 1 prósentustig myndi hækka útborguð laun um 5.600 kr. á mánuði.
  • Lækkun skyldulífeyris: Síðustu ár hafa greiðslur í lífeyrissjóði hækkað og eru nú að lágmarki 15,5% af launum. Lækkun skyldubundins lífeyrissparnaðar um 2 prósentustig myndi hækka útborguð laun um 15.100 kr. á mánuði.

Ef allar breytingarnar yrðu innleiddar samhliða myndu samverkandi áhrif þeirra hækka útborguð laun um 35 þúsund á mánuði eða 420 þúsund krónur á ári og tryggja að einstaklingar byrji fyrr að vinna fyrir útborguðum launum sínum.

Tengt efni

Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt

„Vísað var til þess að fjármagnstekjuskattur væri aðeins 22%, mun lægri en skattur á launatekjur. Sú skattprósenta segir þó aðeins hálfa söguna. Til …
12. október 2026

Hvað borgar þú í skatta? - Skattareiknivél Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð hefur smíðað gagnvirka Skattareiknivél til að varpa ljósi á hversu mikið einstaklingar borga í skatt. Hægt er að slá inn eigin forsendur …
9. september 2026

Óljós ávinningur af skýrslugjöf um kynbundinn launamun

Afnám skyldu til jafnlaunavottunar í frumvarpi til breytinga á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna er tímabært skref. Þrátt fyrir það er með …
4. febrúar 2026

Útborgunardagurinn er í dag

Útborgunardagurinn 2025 er í dag, þann 27. júní. Frá þessum degi byrjar starfsmaður að vinna fyrir útborguðum launum, en frá áramótum þar til nú hefur …
27. júní 2025

Gleðilega útborgun

„Fyrir hverja krónu af útborguðum launum starfsmanns þarf vinnuveitandi að greiða tvær krónur. Rétt tæplega helmingur af kostnaði vinnuveitandans fer …
3. júlí 2025

Afnám jafnlaunavottunar tímabær breyting

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp til breytinga á jafnréttislögum. Ráðið fagnar því að afnumin verði skylda til jafnlaunavottunar, þar sem …
13. október 2025