Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði verðbólgu nú nálægt hámarki og að hún muni hjaðna tiltölulega hratt á næsta ári á Peningamálafundi Viðskiptaráðs í morgun. Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, hvatti stjórnvöld til að ná jöfnuði í ríkisrekstri með aðhaldi fremur en auknum álögum.

Peningamálafundur Viðskiptaráðs fór fram fyrir fullu húsi á Parliament Hotel í morgun. Yfirskrift fundarins var Hagkerfi í ölduróti.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flutti meginerindi fundarins undir yfirskriftinni Peningastefna í kólnandi hagkerfi. Hann fór yfir merki um kólnun í hagkerfinu, meðal annars aukið atvinnuleysi og minni einkaneyslu innanlands sem hefði gefið hraðar eftir en búist var við. Þá hefði húsnæðisverð lækkað að raunvirði og íbúðum til sölu fjölgað.
Ásgeir sagði verðbólgu nú nálægt hámarki og að hún muni lækka tiltölulega hratt á næsta ári í takt við kólnun í hagkerfinu. Spáð væri að innlend eftirspurn gæfi verulega eftir á næsta ári en að vöxtur yrði í útflutningi, sem gæfi von um sársaukaminni aðlögun. Þá benti hann á að skuldir heimila og fyrirtækja væru lágar í sögulegu og alþjóðlegu samhengi.

Allir þurfi að vera samstíga
Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, setti fundinn. Hann benti á að raunvextir hefðu lækkað úr um 3,5% í um 2% frá síðasta fundi, þrátt fyrir 75 punkta hækkun stýrivaxta, þar sem verðbólga hefði reynst þrálátari en vonir stóðu til.
Andri hvatti stjórnvöld til að ná jöfnuði í ríkisrekstri með bættri forgangsröðun fremur en auknum álögum á atvinnulíf og heimili. Hann benti á að samkvæmt greiningu Seðlabankans stefndi í 17 milljarða króna halla á næsta ári, þrátt fyrir hallalaust fjárlagafrumvarp.
Þá gagnrýndi Andri aðkomu hins opinbera að vinnumarkaði, bæði með aðgerðapökkum til að greiða fyrir kjarasamningum og með launahækkunum umfram viðmið almenna markaðarins, líkt og í kjarasamningum kennara. „Ríkið getur ekki annars vegar kallað eftir ábyrgð og aðhaldi á vinnumarkaði en hins vegar grafið undan hvoru tveggja með eigin ákvörðunum,“ sagði hann.
Ávarp Andra má lesa í heild sinni hér.

Breytingar boðaðar á fjárlögum
Að loknum erindum fóru fram tvennar pallborðsumræður. Í þeirri fyrri, þar sem rætt var um hagstjórn og stjórnvöld, tóku þátt Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri og Hafsteinn Hauksson, aðalhagfræðingur Kviku banka. Í þeirri síðari, um atvinnulíf og viðskipti, tóku þátt Finnur Oddsson, forstjóri Haga, Álfheiður Ágústsdóttir, aðstoðarforstjóri Travel Connect, og Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Í fyrri pallborðsumræðunum boðaði Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra frekari ráðstafanir milli umræðna um fjárlagafrumvarpið, svo standa megi við markmið um hallalaus fjárlög á næsta ári.





