Peningamálafundur Viðskiptaráðs fer fram á Parliament Hotel fimmtudaginn 19. nóvember. Fundurinn er haldinn í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans, útgáfu Peningamála og nýrrar þjóðhagsspár.

Peningamálafundur Viðskiptaráðs fer fram á Parliament Hotel fimmtudaginn 19. nóvember. Húsið opnar kl. 8:00 og fundurinn hefst kl. 8:30. Fundurinn er haldinn í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans, útgáfu Peningamála og nýrrar þjóðhagsspár.
Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flytur opnunarávarp og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flytur meginerindi fundarins. Að loknum erindum fara fram tvennar pallborðsumræður.
Hagstjórn og stjórnvöld
Atvinnulíf og viðskipti
Miðaverð er 5.900 kr. og er miðasala er hafin á tix.is. Uppselt hefur verið á fundinn undanfarin ár og því er gott að tryggja sér miða tímanlega.