Viðskiptaráð Íslands

Verðbólgulækkun á Peningamálafundi Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð stóð fyrir árlegum Peningamálafundi í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel í gær, 27. nóvember. Frábær þátttaka var á viðburðinn í ár en um 200 manns mættu til að hlýða á umræðu um efnahagsmál.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

Peningamálafundur Viðskiptaráðs fór fram þann 27. nóvember síðastliðinn, undir yfirskriftinni Vaxtaverkir og hagstjórn. Viðburðurinn hefur fest sig í sessi hjá fyrirtækjum og einstaklingum sem vilja hlýða á seðlabankastjóra fjalla um peningastefnu og efnahagsmál. Fjölmenni var á viðburðinum og gaman frá því að segja að tilkynnt var um lækkun verðbólgu á miðjum fundinum.

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti opnunvarávarp og sagði að nýleg vaxtalækkun Seðlabankans væri lítið skref í rétta átt en að áföll í hagkerfinu hefðu kallað á hana. Andri gagnrýndi áframhaldandi hallarekstur ríkissjóðs og hvatti til aðhalds. „Sé einhvern tíma góður tími til að gera betur í ríkisrekstri, þá er sá tími núna. Við hvorki eigum né getum lifað á yfirdráttarheimildinni endalaust.“

Að venju var hápunktur fundarins erindi Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann benti á að til að ná verðbólgu niður í átt að 2,5% verðbólgumarkmiði þurfi að hægja á efnahagslífinu og kæla vinnumarkaðinn. Það sé nú þegar að raungerast. Á meðan Ásgeir flutti erindi sitt var tilkynnt um lækkun á verðbólgu úr 4,3% niður í 3,7%.

Í kjölfarið fóru fram líflegar pallborðsumræður. Þar tóku þátt Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, Rannveig Eir Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Reir verk, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá.

Myndir frá viðburðinum má sjá hér.

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, Rannveig Eir Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Reir verk, Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, og Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Björn Brynjúlfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, stýrði fundinum og pallborðsumræðum.
Sigurður Stefánsson frá Aflvaka, Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur HMS, og Anton Sveinn McKee, formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins.

Hljóðpptaka frá fundinum er aðgengileg fyrir starfsfólk hjá aðildarfélögum Viðskiptaráðs. Innskráning fer fram með því að nota starfsmannanetfang hjá fyrirtæki sem er í aðild að Viðskiptaráði.

Læst efni

Peningamálafundur Viðskiptaráðs 2025

Skráðu þig inn til að horfa

Ekki félagi? Sæktu um aðild til að fá aðgang.

Tengt efni

Vaxtaverkir og hagstjórn: ávarp formanns á Peningamálafundi

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti opnunarávarp á Peningamálafundi sem fram fór 27. nóvember. Í ræðu sinni sagði Andri að nýleg …
28. nóvember 2025

Peningamálafundur 2025

Árlegur Peningamálafundar Viðskiptaráðs verður haldinn 27. nóvember 2025. Fundurinn hefst kl. 8:30 og fer fram í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel.
27. nóvember 2025

Vaxtaverkir og hagstjórn: Peningamálafundur 2025

Árlegur Peningamálafundar Viðskiptaráðs verður haldinn 27. nóvember 2025. Fundurinn hefst kl. 8:30 og fer fram í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel.
21. nóvember 2025

Verðbólga afleiðing mikils launaþrýstings

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að verðbólgan á Íslandi sé frábrugðin þeirri sem herjar á Evrópu. Hér á landi sé verðbólgan afleiðing mikils …
7. febrúar 2025

Forskot í hagstjórn

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, rýnir í áskoranir og tækifæri í hagstjórn Íslands. Hann leggur áherslu á umbætur í vinnumarkaðsmálum og …
18. febrúar 2025

Ljúka skuli söluferli Íslandsbanka eins fljótt og auðið er

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarpsdrög um breytingar á lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka. Ráðið hvetur stjórnvöld …
24. febrúar 2025