Viðskiptaráð Íslands

Hagkerfi í ölduróti: ávarp formanns á Peningamálafundi 2026

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, hvatti stjórnvöld til að ná jöfnuði í ríkisrekstri með aðhaldi fremur en auknum álögum og gagnrýndi aðkomu hins opinbera að kjarasamningum í opnunarávarpi sínu á Peningamálafundi Viðskiptaráðs í morgun.

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti opnunarávarp á Peningamálafundi Viðskiptaráðs sem fram fór á Parliament Hotel í morgun. Fundurinn var haldinn daginn eftir síðustu vaxtaákvörðun Seðlabankans á árinu, en peningastefnunefnd ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%.

Í ávarpi sínu benti Andri á að raunvextir hefðu lækkað úr um 3,5% í um 2% frá síðasta fundi, þrátt fyrir 75 punkta hækkun stýrivaxta, þar sem verðbólga hefði reynst þrálátari en vonir stóðu til. Hann hvatti stjórnvöld til að ná jöfnuði í rekstri ríkissjóðs með bættri forgangsröðun fremur en auknum álögum á atvinnulíf og heimili og gagnrýndi aðkomu hins opinbera að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.

„Ríkið getur ekki annars vegar kallað eftir ábyrgð og aðhaldi á vinnumarkaði en hins vegar grafið undan hvoru tveggja með eigin ákvörðunum,“ sagði Andri.

Ávarpið má lesa í heild sinni hér að neðan.

Opnunarávarp Andra Þórs Guðmundssonar á Peningamálafundi 2026

Ráðherra, seðlabankastjóri og aðrir góðir gestir. Verið velkomin á Peningamálafund Viðskiptaráðs.

Það er fyrir löngu orðinn fastur liður að við komum hér saman daginn eftir síðustu vaxtaákvörðun hvers árs, rýnum í stöðu efnahagsmála og veltum upp leiðinni fram á við.

Niðurstaða peningastefnunefndar var sú að halda stýrivöxtum óbreyttum í 8%. En frá því við stóðum hér fyrir um ári síðan hafa stýrivextir hækkað um 75 punkta. Það er auðvitað ekki þróun sem við vildum helst sjá. Og þó hefur taumhald peningastefnunnar verið ansi þétt um langt skeið þar sem raunvextir hafa verið á bilinu 2–3% síðastliðið ár.

Þrátt fyrir vaxtahækkanirnar hefur raunvaxtastigið þó lækkað frá því við komum hér saman síðast, úr um 3,5% í um 2%. Ástæðan er sú að verðbólga hefur aukist meira en nemur hækkun stýrivaxta. Það er áhyggjuefni, því það sýnir að verðbólgan hefur reynst þrálátari en vonir stóðu til.

Nú er það aftur á móti svo að um 65% markaðsaðila telja að taumhald peningastefnunnar sé of þétt. Háir vextir hafa áhrif á atvinnulífið, draga úr svigrúmi til fjárfestinga og gera fyrirtækjum erfiðara fyrir að ráðast í ný verkefni. Það er því mikið í húfi að okkur takist að skapa aðstæður sem ýta undir hjöðnun verðbólgu og skapi þannig forsendur fyrir lækkun vaxta.

Þá hefur sterk króna unnið með okkur í að halda aftur af verðbólgunni. Í haust hafði gengi krónunnar gagnvart evru ekki verið hærra síðan um mitt ár 2022, og án þess væri verðbólgan meiri. En sterkri krónu, líkt og háum vöxtum, fylgir kostnaður, enda getur hún veikt samkeppnisstöðu íslenskra útflutningsgreina og gert Ísland að dýrari áfangastað fyrir ferðamenn en ella.

---

Hagkerfi í ölduróti er yfirskrift fundarins og er hún nokkuð viðeigandi í ljósi atburðarásar undangengins árs. Raunar mætti segja að hún lýsi ágætlega því umhverfi sem íslenskt hagkerfi og fyrirtæki hafa þurft að starfa við.

Á undanförnum árum hafa ýmsir ófyrirséðir atburðir gengið yfir. Heimsfaraldur, ítrekuð eldsumbrot og óstöðugleiki í heimsmálunum. Allt eru þetta þættir sem eru þess eðlis að við getum ekki haft stjórn á þeim en þeir hafa engu að síður veruleg áhrif á verðbólgu og vexti, og þar með á það umhverfi sem íslensk fyrirtæki starfa í.

Þótt við höfum takmörkuð áhrif á þessa ytri þætti er margt í okkar eigin efnahagsumhverfi sem við getum haft áhrif á. Þar skiptir ekki síst máli að ná tökum á innlendum verðbólguþrýstingi og að skapa forsendur fyrir varanlegum stöðugleika.

En til að stíga ölduna þurfa allir að vera samstíga.

---

Ríkisstjórnin hefur sett stefnuna út úr öldurótinu og í átt að efnahagslegum stöðugleika með því að leggja fram hallalaust fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027.

Þó virðist sá áfangi ekki vera í augsýn í ljósi greiningar Seðlabankans sem gerir ráð fyrir að miðað við uppfærðar forsendur verði ríkissjóður rekinn með 17 milljarða halla á næsta ári. Eða hvað? Við fáum eflaust að heyra sjónarmið fjármálaráðherra í þessum efnum en hann verður í pallborði á eftir.

Mikilvægi þess að ná jöfnuði í rekstri ríkissjóðs er óumdeilt. Það skiptir aftur á móti máli hvernig honum er náð og hvetjum við stjórnvöld til að líta frekar í átt að auknu aðhaldi með bættri forgangsröðun og hagkvæmri nýtingu opinbers fjár fremur en auknum álögum á atvinnulíf og heimili. Þannig getur ríkisfjármálastefnan stutt betur við peningastefnuna og skapað betri forsendur fyrir hjöðnun verðbólgu og lægri vöxtum.

---

Aðilar vinnumarkaðarins sýndu ábyrgð þegar þeir ákváðu að segja ekki upp gildandi kjarasamningum í haust þrátt fyrir að forsenduákvæði þeirra hefði brostið. Sú ákvörðun skiptir máli fyrir stöðugleika í efnahagslífinu og sýnir mikilvægi þess að standa við gildandi samninga á almennum vinnumarkaði.

Aftur á móti er ástæða til að gjalda varhug við framgöngu hins opinbera á vinnumarkaði og því ölduróti sem aðkoma þess að kjarasamningum á almennum vinnumarkaði skapar.

Annars vegar hefur það orðið að meginreglu að stjórnvöld komi að samningsborðinu með sérstakar aðgerðir og fjárframlög til að greiða fyrir samningum. Nú síðast í október, þegar ríkisstjórnin kynnti aðgerðapakka til stuðnings kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.

Þar var meðal annars boðuð aukin aðkoma ríkisins að fjármögnun almennra íbúða, breytingar á barnabótakerfinu og sérstakar vaxtabætur til heimila ef verðbólga verður yfir tilteknum mörkum.

Kjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru samningar milli launafólks og atvinnurekenda. Þegar stjórnvöld tengja opinber útgjöld og stefnumótun á öðrum sviðum við niðurstöðu þeirra er ástæða til að staldra við. Slík aðkoma getur skapað væntingar um frekari inngrip ríkisins í komandi kjaraviðræðum og gert ábyrgð samningsaðila óskýrari. Þetta er óheillaþróun sem þarf að snúa við.

---

Hins vegar er hið opinbera sjálft stór atvinnurekandi og hefur ekki stigið ölduna með aðilum á almenna vinnumarkaðnum. Í kjarasamningum á opinberum vinnumarkaði hefur hið opinbera grafið undan þeim viðmiðum sem almenni vinnumarkaðurinn hefur komið sér saman um með því að semja um hækkanir umfram þær sem samið hefur verið um á almennum vinnumarkaði.

Kjarasamningar kennara á síðasta ári eru þar nærtækt dæmi. Þar var samið um launahækkanir langt umfram þau viðmið sem höfðu verið sett á almennum vinnumarkaði, en á fyrstu tveimur árum kjarasamninganna hækkaði grunntímakaup kennara um 7–8% meira en annarra heildarsamtaka á vinnumarkaði. Slíkar æfingar ógna stöðugleika á vinnumarkaði.

Almenni vinnumarkaðurinn mótar launaviðmiðið. Hið opinbera þarf að sýna ábyrgð með því að virða það viðmið og gæta þess að eigin ákvarðanir ógni ekki friði á vinnumarkaði.

Ríkið getur ekki annars vegar kallað eftir ábyrgð og aðhaldi á vinnumarkaði en hins vegar grafið undan hvoru tveggja með eigin ákvörðunum.

---

Góðir gestir, þrátt fyrir að við séum stödd í ákveðnu ölduróti þessi misserin er mikilvægt að muna að undirstöður íslenska hagkerfisins eru sterkar. Atvinnulífið er öflugt, þjóðin ung og kraftmikil og lífskjör almennt góð.

Við þurfum þó ávallt að halda áfram að vinna að því að efla hagkerfið og auka hagvöxt. Til þess að varpa ljósi á hvernig við náum best því markmiði höfum við fengið einvalalið. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri mun halda erindi, þar sem hann varpar vonandi ljósi á leiðina út úr öldurótinu. Að erindi hans loknu munum við svo bjóða gestum upp á svið, en í fyrra pallborðinu verður sjónum beint að stjórnvöldum og hagstjórn en í því síðara verður áhersla lögð á atvinnu- og viðskiptalífið.

Tengt efni

Hagkerfi í ölduróti: ávarp formanns á Peningamálafundi 2026

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, hvatti stjórnvöld til að ná jöfnuði í ríkisrekstri með aðhaldi fremur en auknum álögum og gagnrýndi …
19. nóvember 2026

Erindi framkvæmdastjóra á Viðskiptaþingi 2026

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, flutti erinidi á Viðskiptaþingi 2026 undir yfirskriftinni Straumhvörf og stefna Íslands. …
13. febrúar 2026

Vaxtaverkir og hagstjórn: ávarp formanns á Peningamálafundi

Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flutti opnunarávarp á Peningamálafundi sem fram fór 27. nóvember. Í ræðu sinni sagði Andri að nýleg …
28. nóvember 2025

Verðbólgulækkun á Peningamálafundi Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð stóð fyrir árlegum Peningamálafundi í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel í gær, 27. nóvember. Frábær þátttaka var á viðburðinn í ár en …
28. nóvember 2025

Verðbólga afleiðing mikils launaþrýstings

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að verðbólgan á Íslandi sé frábrugðin þeirri sem herjar á Evrópu. Hér á landi sé verðbólgan afleiðing mikils …
7. febrúar 2025

Forskot í hagstjórn

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, rýnir í áskoranir og tækifæri í hagstjórn Íslands. Hann leggur áherslu á umbætur í vinnumarkaðsmálum og …
18. febrúar 2025