Viðskiptaráð Íslands

Hollráð um heilbrigða samkeppni, 2. útgáfa

Uppfærð útgáfa af Hollráðum um heilbrigða samkeppni hefur nú litið dagsins ljós.

Í kjölfar breytinga á breytinga á samkeppnislögum sem gerðar voru sumarið 2020 hefur verið gefin út uppfærð útgáfa af leiðbeiningunum Hollráð um heilbrigða samkeppni.

Lagabreytingarnar lutu einkum að viðmiðunarmörkum um tilkynningarskyldu samruna, tímafresti vegna rannsókna samrunamála og nýju fyrirkomulagi um mat fyrirtækja á því hvort samstarf milli þeirra samrýmist ákvæðum samkeppnislaga. Í þessari uppfærðu útgáfu hefur tillit verið tekið til þessara nreytinga á lögum og leiðbeiningarnar aðlagaðar að þeim. Útgefendur hollráðanna eru sem fyrr Viðskiptaráð Íslands (VÍ), Samtök atvinnulífsins (SA) og Lögmannafélag Íslands.

Hollráð um heilbrigða samkeppni voru fyrst gefin út vorið 2018 með það að markmiði að auðvelda starfsmönnum og stjórnendum fyrirtækja að glöggva sig á þeim lögum og reglum sem gilda um samkeppni fyrirtækja. Markmið samkeppnislaga er að tryggja virka samkeppni í viðskiptum og efla þannig nýsköpun, frumkvæði, framleiðslu og þjónustu á sem lægstu verði.

Fyrsta útgáfa var í höndum sérstaks starfshóps sem útgefendur leiðbeininganna skipaði.

Að uppfærðri útgáfu komu Heimir Örn Herbertsson hrl., Helga Melkorka Óttarsdóttir hrl., Agla Eir Vilhjálmsdóttir lögfræðingur VÍ og Heiðrún Björk Gísladóttir verkefnastjóri hjá SA.

Tengt efni

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Sjöunda útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja er komin út. Samhliða útgáfunni hefur nýr og endurbættur vefur, leidbeiningar.is, verið tekinn …
21. október 2026

Ný útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Sjöunda útgáfa leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja er komin út. Samhliða útgáfunni hefur nýr og endurbættur vefur, leidbeiningar.is, verið tekinn …
21. október 2026

Fullt hús á útgáfufundi nýrra leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja

Yfir 180 manns sóttu útgáfufund sjöundu útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja í Háteigi á Grand Hótel í gær, 21. október. Nýja útgáfan var …
22. október 2026

Hollráð um heilbrigða samkeppni gefin út

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Lögmannafélag Íslands buðu til útgáfufundar í morgun þar sem leiðbeiningar í samkeppnisrétti voru …
24. apríl 2018