Yfir 180 manns sóttu útgáfufund sjöundu útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja í Háteigi á Grand Hótel í gær, 21. október. Nýja útgáfan var kynnt í prenti og nýr vefur, leidbeiningar.is, var opnaður.

Yfir 180 manns sóttu útgáfufund sjöundu útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja, sem fram fór í Háteigi á Grand Hótel í gær, 21. október. Að útgáfunni standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Nýja útgáfan var kynnt í prenti og jafnframt var nýr vefur, leidbeiningar.is, opnaður. Þar má nálgast leiðbeiningarnar í gagnvirkri vefútgáfu á íslensku og ensku.
Fundarstjóri var Lilja Hrund Lúðvíksdóttir, lögfræðingur á málefnasviði SA, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, flutti opnunarávarp.
Einföldun fremur en nýjar kröfur
Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs og verkefnisstjóri endurskoðunarinnar, fór yfir vinnuna að baki útgáfunni og helstu breytingar. Endurskoðunin var unnin af starfshópi útgefenda undir formennsku Þórönnu Jónsdóttur, með fulltrúum úr atvinnulífinu og háskólasamfélaginu. Hún byggði á könnun meðal aðildarfélaga Viðskiptaráðs og SA og skráðra félaga, auk umsagnarferlis þar sem fjölmargar ábendingar bárust.

Meginniðurstaða samráðsins var að leiðbeiningarnar hefðu reynst vel. Kallað var eftir einfaldari og skýrari framsetningu fremur en umfangsmiklum efnisbreytingum. Starfshópurinn hafði því þrjú leiðarljós: að einfalda leiðbeiningarnar, uppfæra þær í takt við breytt lagaumhverfi og samræma þær alþjóðlegri þróun, ekki síst á hinum Norðurlöndunum.
Veigamesta breytingin er að tilmæli eru nú almennt orðuð með „ætti“ í stað „skal“. Lísbet áréttaði að orðalagið eitt og sér breyti ekki vægi tilmælanna. Félag sem segist fylgja leiðbeiningunum þarf eftir sem áður að fylgja einstökum tilmælum eða skýra frávik frá þeim skilmerkilega. Breytingunni er ætlað að undirstrika að stjórnir taki sjálfar upplýsta afstöðu til eigin stjórnarhátta, en ekki að slaka á kröfum.

„Ekki vera feimin“
Marta Guðrún Blöndal, lögmaður og stjórnarmaður, flutti erindið „Ekki vera feimin“. Hún minnti á að leiðbeiningarnar urðu til að frumkvæði atvinnulífsins. Sveigjanleikinn sem þær veita byggi á trausti, og atvinnulífið þurfi því að sýna að þær virki.
Sem dæmi nefndi hún kynjahlutföll í forystu íslenskra fyrirtækja. Konur eru 40,9% stjórnarmanna þar sem viðmiðið er lögfest, en aðeins 21,4% framkvæmdastjóra fyrirtækja, og einungis ein kona gegnir stjórnarformennsku í skráðu félagi. Marta lagði áherslu á að leiðbeiningarnar ættu að kalla fram dómgreind stjórna, ekki koma í stað hennar.
Pallborðsumræður
Fundinum lauk með pallborðsumræðum um hvað nýju leiðbeiningarnar þýða í framkvæmd. Þátttakendur voru Heiðar Guðjónsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, Rut Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá KPMG, og Þóranna Jónsdóttir, formaður nefndar um stjórnarhætti. Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Nasdaq Iceland, stýrði umræðum.
Viðskiptaráð þakkar fyrirlesurum, þátttakendum í pallborði og gestum kærlega fyrir komuna. Nýja útgáfan tekur gildi 1. janúar 2027.
Birgir Ísleifur tók myndir á viðburðinum sem má nálgast hér.




