Viðskiptaráð Íslands

Menntakerfi með ómarktækar einkunnir

„Færni og framtíðartækifæri grunnskólabarna eiga að vera undir þeim sjálfum komin. Það leiðir til betri árangurs bæði fyrir nemendur og skólakerfið í heild,“ segir í nýrri grein eftir Björn Brynjúlf Björnsson, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, á Vísi.is í morgun.

Frumvarp Ásthildar Lóu Þórsdóttur, mennta- og barnamálaráðherra, um námsmat er nú til meðferðar á Alþingi. Í frumvarpinu leggur hún til að skólaeinkunnir verði notaðar sem lokamat grunnskóla á færni nemenda þegar þeir klára 10. bekk.

Þetta sætir furðu í ljósi þess að skólaeinkunnir eru ósamanburðarhæfar á milli skóla. Þannig segir rannsókn Menntamálastofnunar frá 2022 að „35% nemenda búa við það að [skólaeinkunn] þeirra er líklega umtalsvert lægri eða hærri en hefði verið í öðrum skóla. [...] Ósamræmi er í hvernig námsmati er beitt eftir skólum.“ Önnur rannsókn sömu stofnunar staðfesti þráláta einkunnaverðbólgu skólaeinkunna jafnvel þótt skipt hefði verið úr tölustöfum yfir í bókstafi til að reyna að sporna við henni.

Frumvarp ráðherra þýðir því að enginn samanburðarhæfur mælikvarði verður til um gæði skólastarfs eða færni barna við lok grunnskólagöngu. Þá verður umsóknum barna um framhaldsskólavist forgangsraðað út frá einkunnum sem eru ósamanburðarhæfar. Afleiðingin er að brotið verður gegn reglu um jafnræði óháð búsetu, bæði á meðan grunnskólagöngu stendur og einnig við innritun í framhaldsskóla.

Hver eru rök ráðherrans fyrir þessu? Í umræðum um málið á Alþingi nefnir hún tvö atriði: „Svo er það náttúrlega líka ekki gott að vera með samræmd próf í 10. bekk því að þá fer allur veturinn í að kenna út frá því. [...] Svo er líka hætta á því að samræmd lokapróf [...] leiði til einsleits nemendahóps [...] Framhaldsskólar verða líka að taka ábyrgð á því að stuðla að fjölbreyttu samfélagi.“

Fyrri röksemdin stenst ekki skoðun. Samræmd próf kanna færni nemenda samkvæmt aðalnámskrá, til dæmis í lestri, reikningi og náttúruvísindum. Ef kennsla snýst um að tryggja að nemendur nái hæfniviðmiðum aðalnámskrár er það einmitt til marks um að prófin virki sem skyldi. Heilbrigt skólastarf byggir á skýrum hæfniviðmiðum og kennarar stýra síðan sinni kennslu með þau í huga.

Seinni röksemdin gengur út frá því að yfirvöld eigi að tryggja „fjölbreytni“ í nemendahópum frekar en að einstaklingar komist áfram á eigin verðleikum. Þessi afstaða virðist byggja á úreltum hugmyndum um jafnar útkomur fremur en jöfn tækifæri. Það er ekki hlutverk stjórnvalda að stýra samsetningu nemendahópa framhaldsskóla út frá óskýrum hugmyndafræðilegum markmiðum. Stjórnvöld eiga að tryggja jafnræði: öll börn eiga að njóta sanngjarns og gagnsæs mats á færni sinni og hafa sömu tækifæri til að komast áfram á eigin verðleikum.

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis fjallar nú um frumvarp ráðherra. Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn þar sem við leggjum til að samræmd próf verði notuð sem lokamat grunnskóla í stað skólaeinkunna. Vonandi verður sú breyting að veruleika. Færni og framtíðartækifæri grunnskólabarna eiga að vera undir þeim sjálfum komin. Það leiðir til betri árangurs bæði fyrir nemendur og skólakerfið í heild.

Björn Brynjúlfur Björnsson
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs

--

Greinin birtist fyrst á Vísir.is þann 7. mars 2025

Tengt efni

Einkunnir sem hæfniviðmið er besti mælikvarðinn

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp um breytingar á lögum um framhaldsskóla sem varða innritunarferli og viðmið við val á nemendum. …
28. október 2025

Grefur undan hvata til þátttöku á vinnumarkaði

Tenging almannatrygginga við launavísitölu felur í sér verulega og óskynsamlega útgjaldaaukningu. Viðskiptaráð leggst gegn breytingunni enda mun hún …
30. október 2025

Steinar í götu samrunaaðila

„Virk samkeppni er forsenda framleiðni- og hagvaxtar, en reglur sem eiga að tryggja hana mega ekki verða of íþyngjandi. Samkeppnislög þurfa að stuðla …
23. október 2025

Frumvarp um skammtímaleigu nær ekki markmiðum sínum

Endurflutt frumvarp, sem takmarkar skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis, gengur gegn markmiðum sínum. Þetta kemur fram í umsögn Viðskiptaráðs. Ráðið varar …
9. október 2025

Aðgerðir gegn nikótíni hamli samkeppni og skerði valfrelsi

Bann við netsölu, takmörkun bragðefna og einsleitar umbúðir er meðal tillagna í frumvarpsdrögum um setningu heildarlöggjafar um nikótín- og …
20. ágúst 2025

Að loknum fyrsta leikhluta

„Fyrir ríkisstjórn sem vill stuðla að sem mestum jákvæðum efnahagslegum áhrifum eru mörg tækifæri á sjóndeildarhringnum. Sala á fleiri …
14. ágúst 2025