Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn um fjármálaáætlun fyrir árin 2025 til 2029. Viðskiptaráð telur þörf á frekara aðhaldi í áætlunni, ganga eigi lengra í eignasölu eftir Íslandsbanka til að minnka skuldir ríkissjóðs, og að tímabært sé að endurhugsa húsnæðisstuðning vegna kostnaðar.
6. maí 2024
Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um frumvarpið og telur fyrirhugaðar breytingar til mikilla bóta. Viðskiptaráð leggur til að breytingar á virðisaukaskattslögum nái fram að ganga og bindur vonir við að með þeim taki löggjöfin af öll tvímæli um hvenær sala til erlendra aðila sé undanþegin ...
2. maí 2024
Viðskiptaráð Íslands fagnar áformum um að gengið verði frá sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka sem eru í samræmi við gildandi fjárlög, fjármálaáætlun og stjórnarsáttmála.
2. maí 2024
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind áform. Ráðið fagnar að með því sé stigið skref í átt að sameiningu sjóða sem falla undir málefnasvið ráðuneytisins og hvetur til áframhaldandi vinnu á fleiri málefnasviðum í samstarfi við önnur ráðuneyti.
30. apr 2024
Viðskiptaráð Íslands hefur birt nýja útgáfu af The Icelandic Economy. Skýrslan er á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu samhengi.
30. apr 2024
Viðskiptaráð Íslands hefur birt nýja útgáfu af The Icelandic Economy. Skýrslan er á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu samhengi.
30. apr 2024
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint frumvarp en því er ætlað að auka fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða í leigufélögum.
29. apr 2024
„Aðhaldskrafa er ekki byggð inn í stjórnkerfið sem við búum við og þannig hafa bæði stjórnmála- og embættismenn sterka hvata til að færa út kvíarnar og sífellt stækka valdsvið sitt.“
19. apr 2024
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind áform. Ráðið fagnar að endurskoðun sé hafin og þeim markmiðum sem stefnt er að með breytingunum.
18. apr 2024
Fyrir hverja krónu sem heimili og fyrirtæki verja samanlagt, eyðir hið opinbera krónu á móti. Þannig ráðstafar hið opinbera hvergi hærra hlutfalli af verðmætasköpuninni en á Íslandi.
14. apr 2024
Svanhildur Hólm fer yfir fermingaráhrif í efnahagslegu samhengi.
12. apr 2024
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint mál um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. Ráðið skilaði umsögn við drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda þar sem ráðið fagnaði áherslum í frumvarpinu en gagnrýndi ófullnægjandi mat á hagrænum áhrifum.
8. apr 2024
Viðskiptaráð Íslands ásamt fleiri samtökum hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu 726. mál.
8. apr 2024
Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð Íslands (samtökin) hafa skilað inn umsögn og koma á framfæri athugasemdum um breytingar á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993 (ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins), mál nr. 787 á 154. löggjafarþingi. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ...
27. mar 2024
Viðskiptaráð hefur komið á framfæri umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum nr. 36/1994 (húsnæðisöryggi og réttarstaða leigjenda). Að mati Viðskiptaráðs gengur frumvarpið gegn meginmarkmiðum starfshópsins um að breytingar á húsaleigulögum dragi ekki úr framboði á ...
25. mar 2024
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um listamannalaun sem miða að því að stofna þrjá nýja launasjóði og fjölga úthlutuðum mánaðarlegum starfslaunum.
21. mar 2024
Með frumvarpinu er ætlunin að veita lagastoð, skýra og samræma hugtakanotkun um fjarheilbrigðisþjónustu og mismunandi þætti hennar. Viðskiptaráð telur jákvætt að verið sé að veita fjarheilbrigðisþjónustu lagastoð, en veltir því samt sem áður fyrir sér hvers vegna þurfi að greina á milli ...
21. mar 2024
Viðskiptaráð skilaði á dögunum inn umsögn um drög að frumvarpi til laga um Loftslags- og orkusjóð. Viðskiptaráð telur meginefni þess til bóta og fagnar því að stigin séu skref til að einfalda sjóðakerfi ríkisins, en telur nauðsynlegt að endurskoða hlutverk nýs sameinaðs sjóðs.
21. mar 2024
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar þingsályktunartillögu um fjölmiðlastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Það er mat Viðskiptaráðs að aðgerðaáætlunin sé ekki fullunnin.
20. mar 2024
Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint frumvarp. Ráðið telur meginefni þess til bóta og að með því séu stigin skref í átt að einfalda styrkveitingarkerfi hins opinbera.
15. mar 2024