Viðskiptaráð Íslands

Kosta höftin okkur 80 ma. kr. í gjaldeyristekjur á ári?

Fjármagnshöftin og áhrif þeirra á fyrirtæki innan alþjóðageirans voru mikið rædd á nýafstöðnu Viðskiptaþingi. Fimm árum frá setningu eru höftin enn til staðar og engin opinber áætlun um afnám þeirra liggur fyrir.

Viðskiptaráð hefur nú lagt mat á áhrif haftanna á nýliðun og vöxt fyrirtækja innan alþjóðageirans. Þetta mat gefur til kynna að fjármagnshöftin hafi dregið úr útflutningi innan alþjóðageirans um allt að 80 ma. kr. árið 2013. Sú upphæð jafngildir um einni milljón króna í gjaldeyri á hverja fjölskyldu landsins.

Trúverðug áætlun til afnáms hafta þjónar lykilhlutverki ef koma á í veg fyrir að þessi skaði aukist enn frekar. Slík áætlun þarf að vera heildstæð og styðja við vaxtargrundvöll fyrirtækja í alþjóðlegri starfsemi. Í því felst að ekki sé eingöngu tekið á afmörkuðum hlutum vandans, líkt og bönkum í slitameðferð, heldur horft til þess hvernig megi afnema höft á alla aðila á sem skemmstum tíma.

Skoðunina má nálgast hér

Alþjóðageirinn óx hraðar þegar flæði fjármagns var frjálst
Í skoðuninni kemur m.a. fram að alþjóðageirinn óx hratt á meðan flæði fjármagns var frjálst, en gerði það ekki innan hafta. Sé miðað við sögulegar tölur má áætla að fjármagnshöftin hafi dregið úr útflutningi alþjóðageirans um 78 ma. kr. árið 2013.

Þetta má sjá á eftirfarandi myndum:

2014.03.10_Mynd 3

2014.03.10_Mynd 4

Skoðunina má nálgast hér

Tengt efni:

Tengt efni

Afnám á einu ári? - Önnur leið við afnám gjaldeyrishafta

Afnám gjaldeyrishafta er þjóðþrifamál og mikilvægur áfangi í vegferð til endurreisnar íslensks hagkerfis. Höft á fjármagnsflutninga hafa varað í þrjú …
15. desember 2011

Hvað kosta höftin?

Alþjóðageirinn var umfjöllunarefni nýafstaðins Viðskiptaþings. Eitt af aðalumfjöllunarefnum þingsins var „1.000 milljarða áskorunin“ svokallaða. Til …
17. mars 2014

Hvað kosta höftin?

Alþjóðageirinn var umfjöllunarefni nýafstaðins Viðskiptaþings. Eitt af aðalumfjöllunarefnum þingsins var „1.000 milljarða áskorunin“ svokallaða. Til …
17. mars 2014

Gjaldeyrishöftin: Ný skýrsla og afnámsáætlun

Nýverið kom út ný skýrsla Viðskiptaráðs um gjaldeyrishöftin þar sem fjallað er um kostnaðinn sem af þeim hlýst og efnahagsleg áhrif þeirra. Tilgangur …
15. desember 2011

Fundur um gjaldeyrishöft: Afnám á einu ári?

Í gærmorgun stóðu Viðskiptaráð Íslands og Samtök iðnaðarins fyrir vel sóttum morgunverðarfundi um gjaldeyrishöftin. Á fundinum var gefin út ný skýrsla …
16. desember 2011

Gjaldeyrishöft hvetja til erlendrar uppbyggingar

Eins og þekkt er þá voru sett á gjaldeyrishöft í kjölfar bankahrunsins til að hindra mikla veikingu krónunnar og stuðla að auknum gengisstöðugleika. …
11. nóvember 2010