Viðskiptaráð Íslands

Gjaldeyrishöftin: Ný skýrsla og afnámsáætlun

Nýverið kom út ný skýrsla Viðskiptaráðs um gjaldeyrishöftin þar sem fjallað er um kostnaðinn sem af þeim hlýst og efnahagsleg áhrif þeirra. Tilgangur með útgáfu skýrslunnar er að ýta á ný við umræðu um gjaldeyrishöftin með því að varpa ljósi á margvíslega skaðsemi þeirra fyrir íslenskt hagkerfi verði þau of lengi við lýði.

Samhliða gerð skýrslunnar hafði Viðskiptaráð frumkvæði að því að kalla til hóp sérfræðinga til að móta nýja áætlun um afnám hafta. Sú áætlun felur í sér metnaðarfulla en raunhæfa leið til afnáms hafta á um það bil einu ári, án þess að verulegur þrýstingur verði á gjaldeyrismarkað og kostnaði verði haldið í lágmarki. Skýrslan og áætlun hópsins voru kynnt á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs og SI sem fram fór 15. desember.

Í hópnum sátu eftirtaldir:

  • Erlendur Magnússon, framkvæmdastjóri Total Capital Partners
  • Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
  • Gylfi Magnússon, dósent við viðskiptafræðideild HÍ
  • Lúðvík Elíasson, hagfræðingur
  • Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
  • Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland
  • Tanya Zharov, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Auðar Capital
  • Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingu

Það er von Viðskiptaráðs Íslands að umræðan sem skapast um efni þessarar skýrslna og tillögur vinnuhóps um nýja og markvissari áætlun um afnám gjaldeyrishafta verði til þess að íslenskt efnahagslíf losni sem fyrst úr viðjum gjaldeyrishafta. Það yrði stór áfangi á vegferð til heilbrigðara rekstrarumhverfis fyrirtækja og betri lífskjara fyrir þá sem Ísland byggja.

Skýrslu Viðskiptaráðs og greinagerð hópsins má finna hér:

Glærur af morgunverðarfundinum 15. desember:

Tengt efni

The Icelandic Economy – 4F 2023

Viðskiptaráð Íslands hefur birt nýja ársfjórðungslega útgáfu af The Icelandic Economy. Skýrslan er á ensku og fjallar um íslenskt efnahagslíf í víðu …
2. nóvember 2023

Fundur um gjaldeyrishöft: Afnám á einu ári?

Í gærmorgun stóðu Viðskiptaráð Íslands og Samtök iðnaðarins fyrir vel sóttum morgunverðarfundi um gjaldeyrishöftin. Á fundinum var gefin út ný skýrsla …
16. desember 2011

Íslenskt efnahagslíf: Staða, þróun og horfur

Ný skýrsla um íslenskt efnahagslíf hefur nú verið gefin út. Þar er fjallað um stöðu efnahagsmála á Íslandi í dag, nýlega atburði í stjórnmálum, …

Ensk samantekt á skoðun um gjaldeyrishöftin

Viðskiptaráð hefur gefið út kynningu á ensku á skoðuninni „Heildarmynd af höftunum: Erlendar skuldir og forsendur afnáms.“
23. apríl 2014

The Icelandic Economy

Ný útgáfa skýrslunnar „The Icelandic Economy: Current State, Recent Developments and Future Outlook“ hefur nú verið gefin út. Í henni er fjallað um …

Afnám gjaldeyrishafta

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna aðgerðaáætlunar stjórnvalda til losunar fjármagnshafta.
18. júní 2015