Viðskiptaráð Íslands

Bætt stjórnsýsla eykur traust

Traust til stjórnsýslu, stjórnvalda og Alþingis hefur beðið talsverða hnekki í því umróti sem fylgt hefur falli bankanna. Ein birtingarmynd þessarar stöðu voru háværar kröfur um gagngerar breytingar innan ríkisstjórnar og ákveðinna stofnana hins opinbera. Þessi afstaða kom skýrt fram hjá aðildarfélögum Viðskiptaráðs í nýlegri viðhorfskönnun, en um 9 af hverjum 10 aðildarfélögum töldu nauðsynlegt að stokka upp í ríkisstjórn og gera mannabreytingar hjá Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu á þeim tíma sem könnunin var framkvæmd. Ríkjandi vantraust undanfarinna vikna og mánaða hefur komið í veg fyrir skjóta og skilvirka ákvarðanatöku og hefur staðið nauðsynlegu uppbyggingarstarfi fyrir þrifum.

Eins og þekkt er þá hafa talsverðar breytingar þegar orðið í þessum efnum þar sem ný ríkisstjórn hefur tekið við völdum og ýmsir embættismenn horfið frá störfum. Til viðbótar hefur verið boðað til Alþingiskosninga nú í vor. Með þessu má gera ráð fyrir að öldur vantrausts og tortryggni lægi tímabundið en hér skiptir þó öllu að ekki sé tjaldað til einnar nætur. Nýta þarf tímann fram að kosningum til að leggja grunn að endurreisn hagkerfisins og fylgja þeirri vinnu eftir með markvissum hætti í kjölfar kosninga, hver sem niðurstaða þeirra verður. Sá grunnur verður ekki lagður nema þingheimur sameinist um aðgerðir sem miða að því að um starfsemi hins opinbera ríki víðtækt traust. Þetta traust verður að ríkja jafnt gagnvart sitjandi ríkisstjórn hverju sinni sem og öðrum fulltrúum hins opinbera, s.s. stjórnar Fjármálaeftirlitsins, stjórnar Seðlabankans, stjórnenda ríkisbankanna og annarra embættismanna.

Á tímum sem þessum er því mikilvægt að huga að leiðum til að styrkja almennt traust til stjórnsýslu, óháð því hvar menn standa í pólitík. Stjórnvöld og embættismenn ættu að sýna gott fordæmi með því að láta flokkadrætti og pólitískan hégóma víkja fyrir þjóðarhagsmunum og leggja alla áherslu á að veita góðum og mikilvægum verkefnum brautargengi fram að kosningum. Skjótar aðgerðir í átt að endurreisn atvinnulífs, stöðugra atvinnustigi, bættum hag heimila, markvissri upplýsingagjöf og virku samstarfi við erlenda aðila eru stoðirnar sem endurvakið traust mun byggja á. Vinnubrögð þurfa að einkennast af heiðarleika, gagnsæi, upplýsingagjöf og samvinnu.

Skoðunina í heild sinni má nálgast hér

Tengt efni

Ábyrgð Viðskiptaráðs

Í kjölfar falls bankakerfisins haustið 2008 hefur Íslendingum verið ofarlega í huga að gera upp og skilja hjá hverjum ábyrgð á þeirri atburðarás …
19. janúar 2011

Reglur um stjórnarhætti fjármálafyrirtækja í ríkiseigu

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöll Íslands áttu fyrir röskum fimm árum frumkvæði að því að setja fram leiðbeiningar um …
14. október 2008

Hagvöxtur eða hugmyndafræðilegir sigrar?

Allt frá hruni bankakerfisins hefur legið fyrir að mikil uppstokkun væri framundan í ríkisfjármálum. Til að brúa þá gjá sem myndast hefur í rekstri …
11. mars 2010

Skýrsla rannsóknarnefndar nýtt til umbóta

Í síðustu viku skilaði rannsóknarnefnd Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna skýrslu þar sem niðurstöður hennar voru kunngerðar. …
23. apríl 2010

Hvernig má auka traust á stjórnmálum?

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um tillögur starfshóps um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu. Taka má undir markmið frumvarpsins enda …
2. október 2018