Viðskiptaráð Íslands

Afnema þarf áfengiseinokun að fullu

Viðskiptaráð telur frumvarpið vera skref í rétta átt en að ganga þurfi mun lengra og afnema að fullu einokunarverslun ríkisins á smásölu með áfengi.

Lesa umsögn í heild sinni

Viðskiptaráð hefur komið sjónarmiðum sínum á framfæri um frumvarp til breytinga á áfengislögum. Frumvarpið felur í sér að dregið verður úr einokun Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á smásölu áfengis til neytenda. Viðskiptaráð telur frumvarpið vera skref í rétta átt en að ganga þurfi mun lengra og afnema að fullu einokunarverslun ríkisins á smásölu með áfengi.

Afleiðingin á slíkri einokun er sú að kraftar samkeppni leiða ekki til aukinnar hagkvæmni í rekstri líkt og raunin hefur verið í vefverslun með aðrar vörutegundir. Loks telur ráðið lýðheilsusjónarmið ekki eiga við um það frumvarp sem hér er kynnt enda er vefverslun erlendra nú þegar leyfileg og í fullri starfsemi. Því má fyrst og fremst búast við að selt magn flytjist frá erlendri verslun til innlendrar verslunar án þess þó að það aukist svo nokkru nemi.

Lesa umsögn í heild sinni

Tengt efni

Tímabært að endurskoða áfengissölu

Viðskiptaráð telur tímabært að afnema einkasölu ríkisins á áfengi. Það hefur sýnt sig að núverandi fyrirkomulag er illa til þess fallið að takmarka …
25. mars 2026

Afnema ætti ríkiseinokun og auglýsingabann

Íslensk áfengislöggjöf mismunar innlendum fyrirtækjum samanborið við erlend fyrirtæki, bæði hvað varðar sölu og auglýsingar á áfengi. Jafna ætti …
15. október 2024

Jafna þarf stöðu innlendra áfengisframleiðenda

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um breytingu á áfengislögum.
24. mars 2022

Afnema þarf að fullu einokunarverslun ríkisins á smásölu með áfengi

Einokunarstaða ÁTVR hefur þær afleiðingar að kraftar samkeppni leiða ekki til aukinnar hagkvæmni í rekstri líkt og raunin hefur verið í verslun með …
4. mars 2021

Viðskiptaráð styður afnám einokunar á smásölu áfengis

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn vegna breytinga á lögum um verslun með áfengi og tóbak. Viðskiptaráð leggur til að frumvarpið nái fram að ganga og að …
15. febrúar 2016

Sammála umsögn um áfengisfrumvarp

Viðskiptaráð fagnar umsögn meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um endurskoðun á áfengislöggjöfinni. Þar kemur fram að rétt sé endurskoða …
5. febrúar 2015