Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaráð styður afnám einokunar á smásölu áfengis

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn vegna breytinga á lögum um verslun með áfengi og tóbak. Með tillögunni er lagt til að lögum um verslun með áfengi og tóbak verði breytt þannig að einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) á smásölu áfengis verði aflagt og smásala áfengis verði að ákveðnu marki frjáls. Viðskiptaráð leggur til að frumvarpið nái fram að ganga.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér

Í umsögninni kemur eftirfarandi fram:

  • Einokun ríkir á smásölu með áfengi þrátt fyrir að um atvinnurekstur sé að ræða. Afleiðingin er sú að kraftar samkeppni leiða ekki til aukinnar hagkvæmni í rekstri. Því má telja að afnám einkaleyfis á sölu áfengis muni leiða til bættrar þjónustu og lægra vöruverðs fyrir neytendur.
  • Helstu rökin fyrir einokun á smásölu með áfengi byggjast á sjónarmiðum um lýðheilsu. Hins vegar telur Viðskiptaráð að árangursríkasta leiðin til að draga úr misnotkun á áfengi sé í gegnum forvarnarstarf, en ekki takmarkanir á frelsi einstaklinga til neyslu þess.
  • Telur ráðið jafnframt að afnám einkaleyfis ÁTVR á smásölu áfengis muni hafa óveruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs. Vísaði Viðskiptráð í tölur úr ársskýrslu ÁTVR því til stuðnings.

Tengt efni

Umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn um frumvarpið og telur fyrirhugaðar breytingar til mikilla bóta. Viðskiptaráð leggur til að breytingar á …
2. maí 2024

Forvarnir ákjósanlegri en frelsisskerðing

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn vegna breytinga á lögum um verslun með áfengi og tóbak. Með tillögunni er lagt til að einkaleyfi ÁTVR á smásölu …
20. mars 2017

Frjáls smásala áfengis

Viðskiptaráð styður frumvarp um frjálsa smásölu áfengis og leggur til að það verði samþykkt. Í umsögninni kemur fram að frjáls smásala áfengis auki …
11. nóvember 2014

Afnema þarf áfengiseinokun að fullu

Viðskiptaráð telur frumvarpið vera skref í rétta átt en að ganga þurfi mun lengra og afnema að fullu einokunarverslun ríkisins á smásölu með áfengi.
27. febrúar 2020

Sammála umsögn um áfengisfrumvarp

Viðskiptaráð fagnar umsögn meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um endurskoðun á áfengislöggjöfinni. Þar kemur fram að rétt sé endurskoða …
5. febrúar 2015

Breytingar á lögum um verslun og áfengi

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um frumvarp til laga um breytingar á lögum um verslun og …
3. desember 2013