Viðskiptaráð Íslands

Burt með bankaskattinn

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til starfshóps um Hvítbók fjármálakerfisins. Í umsögninni leggur Viðskiptaráð áherslu á að einkaframtakið og samkeppni fái að njóta sín á fjármálamarkaði eins og hægt er. Fjármálamarkaðir og bankar eru þó, eins og reynslan sýnir, nokkuð ólíkir annarri starfsemi sem réttlætir að um hana gildi aðrar reglur og annars konar eftirlit en í öðrum atvinnugreinum. Eftirlit, regluverk og umgjörð má þó aldrei vera of íþyngjandi og á kostnað neytenda en Viðskiptaráð óttast að það hafi verið raunin síðustu ár.

Jafnframt er lögð áhersla á að bankaskatturinn verði afnuminn sem fyrst til þess að draga úr kostnaði neytenda, stuðla að lægri vöxtum og auka virði bankanna. Fjármálakerfið þarf að vera búið undir tæknibreytingar og meðal annars sökum þess að einkaaðilar eru betri til að stýra þeirri vegferð ætti ríkið að selja bankana eins fljótt og auðið er, Þá telur Viðskiptaráð að á örmarkaði sé nauðsynlegt að fjármálastofnanir eigi í samstarfi um ákveðna grunninnviði sem getur náð m.a. til greiðslumiðlunar og upplýsingatækni. Að lokum óskar Viðskiptaráð þess að hófsemi sé höfð að leiðarljósi þegar kemur að umfangi eftirlits og regluverks.

Hér má lesa umsögn ráðsins í heild sinni.

Tengt efni

Umsögn um drög að þingsályktunartillögu um stefnu í neytendamálum til 2030

Viðskiptaráð Íslands gerir athugasemdir við að þrátt fyrir að eðli máls samkvæmt kalli margar aðgerðanna á fjármagn er hvergi að finna kostnaðarmat né …
14. maí 2024

Umsögn um framvarp til laga um breytingar á lögum um tekjuskatt

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint frumvarp sem er ætlað að einfalda regluverk erlendrar fjárfestingar og þar af leiðandi auðvelda …
15. mars 2024

Framkvæmum framtíðarsýn um fjármálakerfið

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað umsögn um Hvítbók um framtíðarsýn um fjármálakerfið. Ráðið tekur í meginatriðum undir þá framtíðarsýn og meginstoðir …
23. janúar 2019

Frumvarp um þunna eiginfjármögnun

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt nr. …
18. nóvember 2013

Einföldun regluverks fagnaðarefni

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna frumvarps sem miðar að því að einfalda regluverk atvinnulífsins. …
22. mars 2017

Lækkun tryggingagjalds og afnám pöntunarþjónustu Fríhafnarinnar fagnaðarefni

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld. Ráðið …
6. maí 2016