Viðskiptaráð styður nútímavæðingu reglna um neytendasamninga en leggst gegn því að sektarheimildir Neytendastofu gangi lengra en tilskipun ESB krefst. Samkvæmt frumvarpsdrögunum gæti sektarhámark fyrirtækis með 100 milljóna króna ársveltu orðið ríflega 70 sinnum hærra en 4% veltuviðmiðið segir til um.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um neytendasamninga nr. 16/2016, mál nr. S-183/2026 í samráðsgátt. Með frumvarpinu eru innleidd ákvæði tilskipunar Evrópusambandsins (ESB) 2019/2161 um betri framfylgd og nútímavæðingu reglna um neytendavernd.
Breytingunum er einkum ætlað að laga reglur um neytendasamninga að auknum stafrænum viðskiptum, meðal annars með nýjum upplýsingakröfum á netmörkuðum og rýmkun gildissviðs laganna til tiltekinna samninga um stafrænt efni og þjónustu þar sem neytandi lætur í té persónuupplýsingar í stað greiðslu. Þá eru lagðar til breytingar á sektarheimildum Neytendastofu til að auka varnaðaráhrif viðurlaga.
Viðskiptaráð telur markmið frumvarpsins um að uppfæra reglur um neytendasamninga í samræmi við tækniþróun og breytta viðskiptahætti réttmæt og tímabær. Skýrar reglur og virk neytendavernd stuðla að trausti í viðskiptum og heilbrigðri samkeppni. Við innleiðingu EES-reglna er þó mikilvægt að tilskipanir séu ekki innleiddar með meira íþyngjandi hætti en innleiðingarskyldan krefst. Þar sem EES-gerðir veita stjórnvöldum svigrúm ætti almennt að velja þá útfærslu sem nær markmiðum regluverksins með sem minnstum tilkostnaði og reglubyrði.
Athugasemdir ráðsins snúa einkum að fyrirhuguðum sektarheimildum í 13. gr. frumvarpsins, mati á áhrifum breytinganna og tafarlausri gildistöku þeirra.
Sektarheimildir ganga lengra en innleiðingarskyldan krefst
Samkvæmt 13. gr. frumvarpsins geta stjórnvaldssektir vegna brota gegn lögunum, reglugerðum settum á grundvelli þeirra og tilteknum ákvörðunum Neytendastofu numið allt að 4% af veltu síðasta rekstrarárs eða jafnvirði 2 milljóna evra í íslenskum krónum, hvort heldur er hærra. Í greinargerð er tekið fram að krafa tilskipunarinnar um tilteknar hámarkssektir sé afmörkuð við brot sem falla undir samræmdar aðgerðir samkvæmt 21. gr. reglugerðar (ESB) 2017/2394. Tilskipunin krefst því ekki að sami sektarrammi gildi um brot sem hafa eingöngu áhrif innanlands. Sú útvíkkun sem lögð er til gengur því lengra en innleiðingarskyldan krefst.
Viðskiptaráð gerði athugasemdir við sambærilega útvíkkun sektarheimilda í umsögn um frumvarp til markaðssetningarlaga árið 2024.[1] Þær athugasemdir voru ítrekaðar í sameiginlegri umsögn Samtaka atvinnulífsins, SVÞ og Viðskiptaráðs frá 1. desember 2025 og eiga áfram við. Samræmi frumvarpsins við markaðssetningarlög réttlætir ekki að mati ráðsins að sama útvíkkun verði nú lögfest í lögum um neytendasamninga.
Ráðið tekur undir að viðurlög vegna innlendra brota þurfi að hafa fullnægjandi varnaðaráhrif. Í greinargerð segir að líkur séu á að núverandi sektir séu of lágar, en þar eru ekki birt gögn um beitingu sektarheimilda, ítrekun brota eða tilvik þar sem gildandi hámark hafi komið í veg fyrir fullnægjandi viðurlög. Þegar lagt er til að stjórnvaldi verði veitt jafn víðtæk og íþyngjandi sektarheimild og hér um ræðir verður að gera ríkar kröfur til þess að sýnt sé fram á nauðsyn hennar og meðalhóf.
Viðskiptaráð telur því ekki sýnt fram á nauðsyn breytingarinnar og leggst gegn því að hinn sérstaki sektarrammi verði látinn ná almennt til allra brota. Ráðið leggur til að hann verði afmarkaður við þau tilvik sem tilskipunin tekur til, þ.e. alvarleg og útbreidd brot með áhrif yfir landamæri sem sæta samræmdum rannsóknar- og eftirlitsaðgerðum samkvæmt fyrrgreindri reglugerð.
Tveggja milljóna evra viðmiðið verði afmarkað
Sérstakt tilefni er til athugasemda við að sektarhámark samkvæmt frumvarpinu miðist við 4% af ársveltu eða jafnvirði 2 milljóna evra, hvort sem hærra reynist. Samkvæmt tilskipun (ESB) 2019/2161 er 2 milljóna evra viðmiðið ætlað þeim tilvikum þegar upplýsingar um ársveltu liggja ekki fyrir. Frumvarpið gengur því lengra en innleiðingarskyldan krefst með því að láta viðmiðið einnig gilda þegar velta fyrirtækis er þekkt.
Þetta getur haft veruleg áhrif á smærri fyrirtæki. Fyrirtæki með 100 milljóna króna ársveltu hefði samkvæmt 4% viðmiðinu fjögurra milljóna króna sektarhámark, en samkvæmt frumvarpinu yrði hámarkið jafnvirði 2 milljóna evra, eða um 290 milljónir króna, ríflega 70 sinnum hærra. Þótt um hámarksfjárhæð sé að ræða telur Viðskiptaráð ekki sýnt fram á nauðsyn svo víðtækrar sektarheimildar.
Ráðið leggur því til að 2 milljóna evra viðmiðið verði bundið við þau tilvik þegar upplýsingar um ársveltu liggja ekki fyrir. Jafnframt verði skýrt í lagatextanum sjálfum hvaða velta skuli lögð til grundvallar við útreikning sektarhámarks.
Áhrifamat og aðlögunarfrestur
Í áhrifamati greinargerðarinnar segir að frumvarpið hafi ekki fjárhagsleg áhrif fyrir ríkið eða aðra aðila. Sú niðurstaða er ekki studd mati á þeim aðlögunar- og framkvæmdarkostnaði sem breytingarnar geta lagt á fyrirtæki. Nýjar upplýsingakröfur geta kallað á breytingar á vefverslunum, viðskiptaskilmálum, upplýsingagjöf og innri ferlum.
Viðskiptaráð telur mikilvægt að áhrifamatið taki til þessa framkvæmdarkostnaðar, sérstaklega hjá smærri fyrirtækjum. Jafnframt verði fyrirtækjum veittur hæfilegur frestur til að laga starfsemi sína að breyttum kröfum. Það samræmist illa sjónarmiðum um fyrirsjáanleika og réttaröryggi að nýjar skyldur taki gildi tafarlaust samhliða verulegri hækkun sektarhámarks. Þá þarf að skýra hvernig breytingarnar eiga við um samninga sem þegar hafa verið gerðir.
Viðskiptaráð styður nútímavæðingu reglna um neytendasamninga en leggst gegn því að gengið verði lengra en innleiðingarskylda tilskipunarinnar krefst varðandi sektarheimildir. Ráðið leggur því til að 13. gr. frumvarpsins verði endurskoðuð þannig að hinn sérstaki sektarrammi verði afmarkaður við þau tilvik sem innleiðingarskyldan tekur til og tveggja milljóna evra viðmiðið verði aðeins notað þegar veltuupplýsingar liggja ekki fyrir í þeim tilvikum. Jafnframt verði veltugrundvöllurinn skýrður í lagatextanum, áhrifamat bætt og fyrirtækjum veittur hæfilegur aðlögunarfrestur.
1 Sjá umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til markaðssetningarlaga (júní 2024). Slóð: https://vi.is/umsagnir/gullhudun-og-refsigledi-i-nyjum-markadssetningarlo