Viðskiptaráð ítrekar athugasemdir við sektarheimildir Neytendastofu sem ekki var tekið tillit til eftir samráð. Ráðið leggur til að sérstaki sektarramminn verði afmarkaður við brot yfir landamæri, að tveggja milljóna evra viðmiðið gildi aðeins þegar velta er óþekkt og að eingöngu verði miðað við veltu þess aðila sem ber ábyrgð á brotinu.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um neytendasamninga nr. 16/2016, 284. mál á 158. löggjafarþingi. Viðskiptaráð skilaði inn umsögn um málið í samráðsgátt og vísar til hennar.[1] Ráðið telur miður að ekki hafi verið tekið frekara tillit til athugasemda þess við útfærslu sektarheimildanna og ítrekar þær hér.
Með frumvarpinu eru innleidd ákvæði tilskipunar (ESB) 2019/2161 um betri framfylgd og nútímavæðingu reglna um neytendavernd. Breytingunum er einkum ætlað að laga reglur um neytendasamninga að auknum stafrænum viðskiptum, meðal annars með nýjum upplýsingakröfum á netmörkuðum og með því að láta lögin ná til tiltekinna samninga um stafrænt efni og þjónustu þar sem neytandi lætur í té persónuupplýsingar í stað greiðslu. Þá er lagt til að sektarheimildir Neytendastofu verði rýmkaðar til að auka varnaðaráhrif viðurlaga.
Viðskiptaráð telur markmið frumvarpsins um að uppfæra reglur um neytendasamninga í takt við tækniþróun og breytta viðskiptahætti réttmæt og tímabær. Skýrar reglur og virk neytendavernd stuðla að trausti í viðskiptum og heilbrigðri samkeppni. Þar sem EES-gerðir veita stjórnvöldum svigrúm til útfærslu ætti þrátt fyrir framangreint að velja þá leið sem nær markmiðum regluverksins með sem minnstum tilkostnaði og reglubyrði.
Sektarheimildir ganga lengra en innleiðingarskyldan krefst
Samkvæmt 13. gr. frumvarpsins geta stjórnvaldssektir vegna brota gegn lögunum, reglugerðum settum á grundvelli þeirra og tilteknum ákvörðunum Neytendastofu numið allt að 4% af veltu síðasta rekstrarárs eða jafnvirði tveggja milljóna evra, hvort heldur er hærra. Eins og rakið er í kafla 3.8.1 í greinargerðinni er krafan um að sektarhámark nemi að minnsta kosti 4% af ársveltu í hlutaðeigandi ríki eða ríkjum bundin við víðtæk brot sem sæta samræmdum aðgerðum samkvæmt 21. gr. reglugerðar (ESB) 2017/2394. Tilskipunin krefst því ekki að sami sektarrammi gildi um brot sem hafa eingöngu áhrif innanlands. Sú útvíkkun sem lögð er til gengur því lengra en innleiðingarskyldan krefst.
Viðskiptaráð gerði athugasemdir við sambærilega útvíkkun í umsögn um frumvarp til markaðssetningarlaga árið 2024 og ítrekaði þær í sameiginlegri umsögn með Samtökum atvinnulífsins og SVÞ 1. desember 2025.[2] Í umsögn um drög að frumvarpi til laga um markaðseftirlit lagði ráðið einnig áherslu á að greint yrði skýrt á milli þess sem EES-gerðir krefjast og þess sem stjórnvöld ákveða við innleiðingu, meðal annars við útfærslu stjórnvaldssekta.[3] Að mati ráðsins nægir samræmi við 33. gr. markaðssetningarlaga ekki til að réttlæta að sérstaki sektarramminn verði látinn ná almennt til innlendra brota gegn lögum um neytendasamninga.
Í kafla 3.8 í greinargerðinni er vísað til þess að gildandi sektarhámark hafi rýrnað að raunvirði og að tryggja þurfi úrræði vegna alvarlegra og ítrekaðra brota. Í greinargerð frumvarpsins segir að líkur séu á að núverandi sektir séu of lágar en þar eru þó hvorki birt gögn um beitingu sektarheimildanna né nefnd dæmi um að hámarkið hafi komið í veg fyrir fullnægjandi viðurlög. Þá skýrir ætluð þörf á úrræðum vegna alvarlegra og ítrekaðra brota ekki hvers vegna sama hámark eigi að gilda um öll brot sem falla undir sektarheimildina.
Þegar lagt er til að stjórnvaldi verði veitt jafn víðtæk og íþyngjandi sektarheimild og hér um ræðir verður að gera ríkar kröfur til þess að sýnt sé fram á nauðsyn hennar og meðalhóf. Viðskiptaráð telur því ekki sýnt fram á nauðsyn breytingarinnar og leggst gegn því að hinn sérstaki sektarrammi verði látinn ná almennt til allra brota. Ráðið leggur til að hann verði afmarkaður við þau tilvik sem tilskipunin tekur til, þ.e. alvarleg og útbreidd brot með áhrif yfir landamæri sem sæta samræmdum rannsóknar- og eftirlitsaðgerðum samkvæmt fyrrgreindri reglugerð.
Tveggja milljóna evra viðmiðið verði afmarkað
Sérstakt tilefni er til athugasemda við að sektarhámark samkvæmt frumvarpinu miðist við 4% af ársveltu eða jafnvirði 2 milljóna evra, hvort sem hærra reynist. Samkvæmt tilskipun (ESB) 2019/2161 er 2 milljóna evra viðmiðið ætlað þeim tilvikum þegar upplýsingar um ársveltu liggja ekki fyrir. Samkvæmt frumvarpinu ræður evruviðmiðið hins vegar sektarhámarkinu í hvert sinn sem það er hærra en 4% af ársveltu, jafnvel þótt veltan sé þekkt. Frumvarpið gengur því lengra en innleiðingarskyldan krefst.
Þetta getur haft veruleg áhrif á smærri fyrirtæki. Fyrirtæki með 100 milljóna króna ársveltu hefði samkvæmt 4% viðmiðinu fjögurra milljóna króna sektarhámark, en samkvæmt frumvarpinu yrði hámarkið jafnvirði 2 milljóna evra, eða um 290 milljónir króna, ríflega 70 sinnum hærra. Þótt um hámarksfjárhæð sé að ræða telur Viðskiptaráð ekki sýnt fram á nauðsyn svo víðtækrar sektarheimildar. Ráðið leggur því til að 2 milljóna evra viðmiðið verði bundið við þau tilvik þegar upplýsingar um ársveltu liggja ekki fyrir.
Orðalag 13. gr. um „veltu síðasta rekstrarárs“ tekur ekki af skarið um hvort miða skuli við veltu þess aðila sem ber ábyrgð á brotinu eða veltu samstæðunnar í heild. Sá munur getur haft veruleg áhrif á sektarhámarkið. Til að tryggja fyrirsjáanleika leggur Viðskiptaráð til að skýrt verði tekið fram í ákvæðinu að eingöngu skuli miða við ársveltu þess aðila sem ber ábyrgð á brotinu. Velta annarra félaga í sömu samstæðu verði ekki talin með.
Áhrifamat og aðlögunarfrestur
Í áhrifamati greinargerðarinnar segir að frumvarpið hafi ekki fjárhagsleg áhrif fyrir ríkið eða aðra aðila. Sú niðurstaða er ekki studd mati á kostnaði fyrirtækja við að uppfylla nýjar kröfur, svo sem vegna breytinga á vefverslunum, viðskiptaskilmálum og innri ferlum. Viðskiptaráð telur brýnt að kostnaðurinn verði metinn og fyrirtækjum veittur hæfilegur frestur til að laga starfsemi sína að nýjum kröfum.
Það samræmist illa sjónarmiðum um fyrirsjáanleika og réttaröryggi að nýjar skyldur taki gildi tafarlaust samhliða verulegri hækkun sektarhámarks. Þá þarf að skýra hvernig breytingarnar eiga við um samninga sem þegar hafa verið gerðir.
Viðskiptaráð styður nútímavæðingu reglna um neytendasamninga en leggst gegn gullhúðun sektarákvæða tilskipunarinnar. Það þjónar hagsmunum neytenda og fyrirtækja að stjórnvöld gangi ekki lengra við innleiðingu EES-gerða en nauðsynlegt er. Ráðið leggur því til að 13. gr. frumvarpsins verði breytt þannig að sérstaki sektarramminn nái aðeins til þeirra brota sem innleiðingarskyldan tekur til og að tveggja milljóna evra viðmiðið gildi í þeim málum aðeins þegar upplýsingar um ársveltu liggja ekki fyrir. Jafnframt verði kveðið á um að við útreikning sektarhámarks skuli eingöngu miða við ársveltu þess aðila sem ber ábyrgð á brotinu, en velta annarra félaga í sömu samstæðu verði ekki talin með.
Með hliðsjón af framangreindu leggst ráðið gegn því að frumvarpið verði samþykkt í núverandi mynd.
1 Sjá umsögn Viðskiptaráðs um drög að frumvarpi til laga um neytendasamninga (október 2026). Slóð: https://vi.is/umsagnir/gullhudun-i-sektarheimildum-neytendastofu
2 Umsögn Viðskiptaráðs o.fl. um frumvarp til markaðssetningarlaga (júní 2024). Slóð: https://vi.is/umsagnir/gullhudun-og-refsigledi-i-nyjum-markadssetningarlo
3 Umsögn Viðskiptaráðs um drög að frumvarpi til laga um markaðseftirlit, mál nr. S-222/2026 í samráðsgátt. Slóð: https://vi.is/umsagnir/innleiding-markadseftirlits-gangi-ekki-lengra-en-naudsyn-krefur