Viðskiptaráð Íslands

Óljósar hugmyndir um veggjöld

Viðskiptaráð hefur sent inn umsögn sína um fimm og fimmtán ára samgönguáætlun. Ráðið hefur áður sent inn umsögn um málið en síðan þá hafa komið fram fyrirætlanir um veggjöld sem ekki lágu fyrir á þeim tíma.[1] Viðskiptaráð telur að skoða ætti hugmyndir um veggjöld en þó eingöngu samhliða heildrænni endurskoðun á fyrirkomulagi gjaldtöku í vegakerfinu með hliðsjón af orkuskiptum og tæknibreytingum.

Helstu atriðin sem Viðskiptaráð vill koma á framfæri eru eftirfarandi:

  • Hugmyndir um veggjöld eru enn of óljósar og þarfnast nánari útfærslu.
  • Samvinnuleið er enn vænlegur kostur og gæti létt verulega á uppsöfnuðum vanda ívegakerfinu.
  • Veggjöld sem skammtímalausn eru að líkindum óhagkvæm og betur færi á að selja ríkiseignir til þess að mæta uppsafnaðri fjárfestingarþörf í vegakerfinu.
  • Mikilvægt er að heildstæð endurskoðun verði gerð á gjaldtöku af ökutækjum í samhengi við núverandi fyrirkomulag, orkuskipti og aðra þætti.
  • Viðskiptaráð leggst gegn veggjöldum í þeirri mynd sem þau hafa verið kynnt nú en býður fram krafta sína við heildræna stefnumótun á sviði gjaldtöku fyrir samgöngumannvirki og skattheimtu ökutækja.

Lesa umsögn í heild sinni


[1] Sjá fyrri umsögn Viðskiptaráðs: https://vi.is/malefnastarf/umsagnir/taekifaeri-til-aukinnar-innvidafjarfestingar/

Tengt efni

Umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um fjölmiðlastefnu og aðgerðaráætlun í málefnum fjölmiðla til 2030

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar þingsályktunartillögu um fjölmiðlastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Það er mat Viðskiptaráðs að aðgerðaáætlunin …
20. mars 2024

Umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn um fjármálaáætlun fyrir árin 2025 til 2029. Viðskiptaráð telur þörf á frekara aðhaldi í áætlunni, ganga …
6. maí 2024

Umsögn um endurmat á virkjunarkostum úr 3. áfanga rammaáætlunar

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar endurmat á virkjunarkostum úr 3. áfanga rammaáætlunar, ráðið tekur ekki efnislega afstöðu til einstakra …
15. mars 2024

Umsögn um áform um frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar áform um frumvarp til laga um kílómetragjald vegna notkunar bifreiða. (gjaldtaka aksturs hreinorku- og …
16. október 2023

Umsögn um frumvarp til laga um kílómetragjald vegna hreinorku- og tengiltvinnbifreiða

Umsögn Viðskiptaráðs um frumvarp til laga um kílómetragjald vegna hreinorku- og tengiltvinnbifreiða. Mál nr. 507 á 154. Löggjafarþingi.
6. desember 2023

Umsögn um áform um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald

Umsögn Viðskiptaráðs um áform um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og lögum um kílómetragjald (kaup og sala þjónustu á milli landa og …
28. febrúar 2024