Viðskiptaráð Íslands

Varanleg heimild til ráðstöfunar séreignar á húsnæðislán til bóta

Aukið valfrelsi og fyrirsjáanleiki í ráðstöfun séreignarsparnaðar, ásamt ákalli um endurskoðun lífeyriskerfisins og fækkun opinberra inngripa á húsnæðismarkaði, er meðal þess sem fram kemur í umsögn Viðskiptaráðs um drög að frumvarpi til laga um varanlega ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Viðskiptaráð hvetur til þess að frumvarpið nái fram að ganga.

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um drög að frumvarpi til laga um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.

Með frumvarpinu er lagt til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól lána verði fest í sessi og að samhliða verði nýting hennar takmörkuð við 10 ár. Viðskiptaráð fagnar áformum stjórnvalda um aukinn fyrirsjáanleika þegar kemur að valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar. Rétt er að benda á að hlutfall eiginlegs skyldusparnaðar á Íslandi er hátt í alþjóðlegum samanburði, en þar vegur þyngst hækkun lögbundins lífeyrissparnaðar í 15,5% árið 2018, en eftir breytinguna nema iðgjöld í lífeyrissjóði, að meðtöldum séreignarsparnaði, í flestum tilfellum 19,5% af launum.

Af skyldubundna lífeyrisgjaldinu er einungis heimilt að láta 3,5% renna í tilgreinda séreign. Ljóst er að eftir því sem hlutfall lífeyrissparnaðar einstaklinga í lífeyrissjóðum hækkar minnkar hvati launþega til að spara til efri áranna með eigin fjárfestingum. Viðskiptaráð hvetur til þess að samhliða varanlegri framlengingu skattfrjálsrar ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána verði hugað að því að endurskoða ákveðna þætti lífeyriskerfisins og auka enn frekar valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar.

Viðskiptaráð leggur einnig til að samhliða því að festa ráðstöfun séreignarsparnaðar á höfuðstól húsnæðislána verði önnur opinber inngrip á húsnæðismarkaði afnumin, t.a.m. stofnframlög til óhagnaðardrifinna leigufélaga. Þá ætti að taka hlutdeildarlán til gagngerrar endurskoðunar með það fyrir augum að fasa úrræðið út. Hlutdeildarlán eru til þess fallin að ýta undir frekari verðþrýsting á fasteignamarkaði og grafa undan yfirlýstu markmiði lánanna um að stuðla að því að fleiri geti eignast eigið húsnæði, en rannsóknir sýna að mikill meirihluti Íslendinga vill búa í eigin húsnæði.

Að framangreindu virtu hvetur Viðskiptaráð til þess að frumvarpið nái fram að ganga.

Tengt efni

Auka ætti frekar valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar

Viðskiptaráð fagnar framlagningu frumvarps um varanlega heimild til ráðstöfunar viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána …
20. apríl 2026

Ganga mætti lengra í fækkun starfsmanna og hagræðingu

Viðskiptaráð fagnar áformum um fækkun ríkisstarfsmanna og sameiningu stofnana en telur að ganga mætti enn lengra. Ráðið hvetur stjórnvöld til að skoða …
7. maí 2026

Fyrstu kaupendum beint í dýrara húsnæði

Viðskiptaráð geldur varhug við frumvarpi til breytinga á húsnæðislögum, sem ætlað er að festa hlutdeildarlánakerfið í sessi. Skammur fyrirvari er á …
15. desember 2025

Ísland stenst ekki samkeppni um erlenda fjárfestingu

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp sem miðar að því að einfalda regluverk í tengslum við erlendar fjárfestingar. Ráðið bendir á tækifæri til …
4. nóvember 2025

Íhlutun á leigumarkaði gæti dregið úr framboði

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum. Ráðið gagnrýnir þær íhlutanir sem lagðar eru til á …
8. október 2025

Frumvarp um skammtímaleigu nær ekki markmiðum sínum

Endurflutt frumvarp, sem takmarkar skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis, gengur gegn markmiðum sínum. Þetta kemur fram í umsögn Viðskiptaráðs. Ráðið varar …
9. október 2025