Viðskiptaráð Íslands

Auka ætti frekar valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar

Viðskiptaráð fagnar framlagningu frumvarps um varanlega heimild til ráðstöfunar viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána og auknum fyrirsjáanleika þegar kemur að valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar. Samhliða því að festa ráðstöfun séreignarsparnaðar á höfuðstól húsnæðislána í sessi leggur ráðið til að önnur opinber inngrip á húsnæðismarkaði verði afnumin

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp til laga um varanlega heimild til ráðstöfunar viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.

Með frumvarpinu er lagt til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól lána verði fest í sessi. Þá er lögð til sú breyting að í stað samfellds tímabils miðist nýting úrræðisins við samtals 120 mánuði. Viðskiptaráð fagnar framlagningu frumvarpsins og auknum fyrirsjáanleika þegar kemur að valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar. Rétt er að benda á að hlutfall eiginlegs skyldusparnaðar á Íslandi er hátt í alþjóðlegum samanburði, en þar vegur þyngst hækkun lögbundins lífeyrissparnaðar í 15,5% árið 2018, en eftir breytinguna nema iðgjöld í lífeyrissjóði, að meðtöldum séreignarsparnaði, í flestum tilfellum 19,5% af launum.

Af skyldubundna lífeyrisgjaldinu er einungis heimilt að láta 3,5% renna í tilgreinda séreign. Viðskiptaráð hvetur til þess að samhliða varanlegri framlengingu skattfrjálsrar ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána verði hugað að því að endurskoða ákveðna þætti lífeyriskerfisins og auka enn frekar valfrelsi við ráðstöfun séreignarsparnaðar.

Viðskiptaráð leggur einnig til að samhliða því að festa ráðstöfun séreignarsparnaðar á höfuðstól húsnæðislána í sessi verði önnur opinber inngrip á húsnæðismarkaði afnumin, t.a.m. stofnframlög til óhagnaðardrifinna leigufélaga.1 Þá ætti að taka hlutdeildarlán til gagngerrar endurskoðunar með það fyrir augum að fasa úrræðið út. Hlutdeildarlán eru til þess fallin að ýta undir frekari verðþrýsting á fasteignamarkaði og grafa undan yfirlýstu markmiði lánanna um að stuðla að því að fleiri geti eignast eigið húsnæði, en rannsóknir sýna að mikill meirihluti Íslendinga vill búa í eigin húsnæði.

Að framangreindu virtu hvetur Viðskiptaráð til þess að frumvarpið nái fram að ganga.

Tengt efni

Varanleg heimild til ráðstöfunar séreignar á húsnæðislán til bóta

Aukið valfrelsi og fyrirsjáanleiki í ráðstöfun séreignarsparnaðar, ásamt ákalli um endurskoðun lífeyriskerfisins og fækkun opinberra inngripa á …
24. febrúar 2026

Fyrstu kaupendum beint í dýrara húsnæði

Viðskiptaráð geldur varhug við frumvarpi til breytinga á húsnæðislögum, sem ætlað er að festa hlutdeildarlánakerfið í sessi. Skammur fyrirvari er á …
15. desember 2025

Ísland stenst ekki samkeppni um erlenda fjárfestingu

Viðskiptaráð hefur skilað umsögn um frumvarp sem miðar að því að einfalda regluverk í tengslum við erlendar fjárfestingar. Ráðið bendir á tækifæri til …
4. nóvember 2025

Íhlutun á leigumarkaði gæti dregið úr framboði

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum. Ráðið gagnrýnir þær íhlutanir sem lagðar eru til á …
8. október 2025

Tilefni til að endurskoða regluverk um lögverndun starfa

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sem er ætlað að lögfesta framkvæmd meðalhófsprófunar við …
4. mars 2025

Eyða þarf óvissu um framkvæmdarleyfi virkjana

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um stjórn vatnamála. Viðskiptaráð fagnar frumvarpinu og …
28. febrúar 2025