Viðskiptaráð Íslands

Skýrsla ráðgjafahóps iðnaðar- og viðskiptaráðherra um sæstreng til Evrópu

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til atvinnuveganefndar um skýrslu ráðgjafarhóps iðnaðar- og viðskiptaráðherra um sæstreng til Evrópu (59. mál). Ráðið telur ótímabært að veita efnislega ábendingar við tiltekna þætti skýrslunnar, en telur tillögur ráðgjafahópsins ágætan leiðarvísi fyrir stjórnvöld og Alþingi.

Viðskiptaráð fjallaði stuttlega um lagning sæstrengs í skýrslu sinni til Viðskiptaþings í febrúar síðastliðnum. Var þar m.a. tekið fram að vegna þeirra fjárhagslegu hagsmuna sem í húfi eru fyrir hagkerfið í heild væri rétt að hrinda af stað heildstæðu mati á hagkvæmni ólíkra valkosta í orkunýtingu. Við slíkt mat væri mikilvægt að horfa á virðiskeðju þessara valkosta og að upplýsingar liggi fyrir um afleiddar afleiðingar ólíkrar stefnumörkunar.

Það er flestum ljóst að frekari könnunar er þörf áður en unnt er að taka ákvörðun um lagningu sæstrengs. Þar skiptir meginmáli að hlutlægt og heildstætt mat á arðsemi og áhættu verði látið ráða för. Aðeins þannig er vörður staðinn um heildarhagsmuni Íslendinga þegar kemur að orkunýtingarmálum. 

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér.

Tengt efni

Umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2025–2029

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn um fjármálaáætlun fyrir árin 2025 til 2029. Viðskiptaráð telur þörf á frekara aðhaldi í áætlunni, ganga …
6. maí 2024

Umsögn Viðskiptaráðs Íslands um sjávarútvegsstefnu og frumvarp til laga um sjávarútveg

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind mál en ráðið hafði áður skilað inn umsögn við málið á fyrri stigum. Til hagræðis tekur umsögnin til …
17. janúar 2024

Þingsályktunartillaga um mótun viðskiptastefnu Íslands

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um mótun viðskiptastefnu Íslands …
6. nóvember 2013

Framkvæmum framtíðarsýn um fjármálakerfið

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað umsögn um Hvítbók um framtíðarsýn um fjármálakerfið. Ráðið tekur í meginatriðum undir þá framtíðarsýn og meginstoðir …
23. janúar 2019

Þingsályktunartillaga um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu

Viðskiptaráð Íslands hefur sent inn umsögn til utanríkismálanefndar Alþingis vegna tillögu til þingsályktunar um að draga til baka umsókn Íslands um …
10. apríl 2014

Þingsályktunartillaga um mótun stefnu í gjaldmiðilsmálum

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um mótun stefnu í …
6. nóvember 2013