Viðskiptaráð tekur undir mikilvægi þess að lágmarkskjör kjarasamninga séu virt en telur að rökstyðja þurfi betur þörf fyrir lögfest févíti og afnám tómlætis. Ráðið leggur til að viðmið um fjárhæð févítis og svigrúm fyrir réttmætan ágreining um túlkun kjarasamninga komi skýrt fram í lagatextanum sjálfum.

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda nr. 55/1980 (viðurlög við brotum gegn lágmarkskjörum o.fl.), mál nr. S-235/2026 í samráðsgátt. Með drögunum er annars vegar lagt til að lögfest verði einkaréttarlegt févíti vegna greiðslna undir lágmarkskjörum kjarasamninga og hins vegar að kröfur um leiðréttingu vangoldinna lágmarkskjara falli ekki niður fyrir tómlæti.
Viðskiptaráð tekur undir mikilvægi þess að lágmarkskjör samkvæmt kjarasamningum séu virt. Jafnframt er mikilvægt að viðurlög við brotum séu skýr, hófleg og fyrirsjáanleg og að útfærsla þeirra taki mið af ólíkum aðstæðum sem geta komið upp við framkvæmd kjarasamninga.
Ráðið telur þó tilefni til að gera nokkrar athugasemdir við útfærslu frumvarpsins.
Skýrleiki og meðalhóf við ákvörðun févítis
Samkvæmt 1. gr. frumvarpsdraganna er lagt til að atvinnurekanda verði gert að greiða launamanni sérstakt févíti vegna brota á lágmarkskjörum kjarasamninga, sem geti numið allt að 25% af höfuðstól gjaldfallinnar kröfu og allt að 75% ef brot er framið af ásetningi. Almennt févíti fellur niður sé vangreiðslan leiðrétt að fullu innan 18 daga frá því að atvinnurekanda berst skrifleg og rökstudd krafa launamanns eða stéttarfélags hans.
Að mati ráðsins er æskilegt að þörf fyrir ný viðurlög verði rökstudd nánar. Launamaður sem fær greitt undir lágmarkskjörum á samkvæmt gildandi lögum rétt á vangoldnum launum, dráttarvöxtum og eftir atvikum skaðabótum og greiðslu málskostnaðar. Þótt í greinargerð frumvarpsdraganna sé vísað til greininga sem benda til þess að brot gegn lágmarkskjörum séu viðvarandi vandamál er hvorki lagt sjálfstætt mat á virkni gildandi úrræða né rökstutt með fullnægjandi hætti hvers vegna þau teljist ófullnægjandi.
Viðskiptaráð telur jafnframt mikilvægt að við ákvörðun févítis sé gætt meðalhófs og tekið tillit til eðlis og alvarleika brots hverju sinni. Í greinargerð frumvarpsins er tekið fram að við ákvörðun févítis skuli meðal annars litið til sakar atvinnurekanda, þess hvort brot hafi verið ítrekað eða kerfisbundið og viðbragða atvinnurekanda eftir að athugasemdir voru gerðar. Ráðið telur þó æskilegt að þessi sjónarmið komi með skýrari hætti fram í lagatextanum sjálfum, enda er mikilvægt að atvinnurekendur og launafólk geti séð fyrir hvaða sjónarmið ráði fjárhæð viðurlaga. Jafnframt væri til bóta að skýrt yrði nánar hvernig fjárhæð févítis skuli ákvörðuð þegar ágreiningur er um hana. Þá eru engin viðmið tilgreind í frumvarpsdrögunum um ákvörðun fjárhæðar févítis innan tilgreindra hámarka. Slíkt myndi stuðla að auknu réttaröryggi og fyrirsjáanleika fyrir báða aðila vinnusambandsins.
Í greinargerð frumvarpsdraganna kemur fram að réttmætur ágreiningur um lágmarkskjör geti talist réttlætanleg ástæða fyrir vangreiðslu, jafnvel þótt síðar komi í ljós að laun hafi verið vangreidd. Þótt í frumvarpstextanum sé að finna almenna undanþágu vegna réttlætanlegra ástæðna er ekki sérstaklega kveðið á um réttmætan ágreining um framkvæmd kjarasamninga eða þau sjónarmið sem leggja beri til grundvallar við mat á honum. Viðskiptaráð leggur áherslu á að þetta atriði verði skýrt nánar í lagatextanum sjálfum, enda mikilvægt að atvinnurekandi sem byggir á tiltekinni túlkun kjarasamnings geti séð fyrir hvort hann eigi févíti á hættu.
Loks telur ráðið rétt að víkja að þeim 18 daga fresti sem atvinnurekanda er veittur samkvæmt frumvarpinu til að leiðrétta vangreiðslu án þess að almennt févíti falli til. Þótt slíkur frestur geti hvatt til skjótrar úrlausnar ágreiningsmála kann hann jafnframt að skapa þrýsting á atvinnurekendur, einkum minni fyrirtæki, til að fallast á kröfur sem þeir telja óréttmætar fremur en að eiga á hættu að greiða févíti verði niðurstaðan þeim í óhag. Mikilvægt er að útfærsla ákvæðisins tryggi að atvinnurekendur geti haldið uppi réttmætum ágreiningi um framkvæmd kjarasamninga þegar svo háttar til.
Brottfall tómlætis
Með 2. gr. frumvarpsins er lagt til að kröfur launamanna um leiðréttingu vangoldinna lágmarkskjara falli ekki niður fyrir tómlæti heldur fyrnist samkvæmt almennum reglum um fyrningu kröfuréttinda. Viðskiptaráð tekur undir mikilvægi þess að launafólk njóti þeirra lágmarksréttinda sem kjarasamningar tryggja. Ráðið telur þó ástæðu til að staldra við þá breytingu sem felst í því að útiloka tómlæti sem sjálfstæða brottfallsástæðu slíkra krafna.
Reglur um tómlæti og fyrningu geta báðar leitt til þess að kröfuhafi glati rétti sínum, en byggjast á ólíkum forsendum. Fyrning ræðst af lögákveðnum frestum en niðurfelling kröfu fyrir tómlæti byggist á heildarmati á atvikum hvers máls, meðal annars vitneskju kröfuhafa um kröfuna, framgöngu hans og því hvort skuldari hafi mátt ætla að kröfunni yrði ekki fylgt eftir. Krafa getur því fallið niður fyrir tómlæti áður en hún fyrnist. Með fyrirhugaðri breytingu yrði ekki unnt að byggja á þessum sjónarmiðum til að hafna kröfu um leiðréttingu vangoldinna lágmarkskjara.
Í greinargerð frumvarpsins er vísað til dómaframkvæmdar þar sem launakröfur hafa fallið niður fyrir tómlæti. Ekki er hins vegar lagt sérstakt mat á hvaða áhrif það hefur að hverfa alfarið frá þessari ólögfestu reglu. Viðskiptaráð telur því æskilegt að sú breyting verði rökstudd nánar og áhrif hennar á réttaröryggi beggja aðila vinnuréttarsambandsins metin áður en frumvarpið verður lagt fram á Alþingi.
Frekari rökstuðning og skýrari útfærslu skortir
Viðskiptaráð tekur undir markmið frumvarpsins um að tryggja að lágmarkskjör samkvæmt kjarasamningum séu virt. Ráðið leggur þó áherslu á að nýjum viðurlögum, komi þau til framkvæmda, verði hagað þannig að þau séu skýr, hófleg og fyrirsjáanleg og tekið sé tillit til réttmæts ágreinings um framkvæmd kjarasamninga. Jafnframt telur Viðskiptaráð brýnt að lagt verði mat á virkni gildandi réttarúrræða og rökstutt með skýrari hætti að hvaða leyti þau teljist ófullnægjandi til að ná þeim markmiðum sem frumvarpinu er ætlað að þjóna.
Með hliðsjón af framangreindu hvetur Viðskiptaráð til þess að ákvæði frumvarpsdraganna verði skýrð nánar, einkum hvað varðar forsendur og ákvörðun févítis, og að áhrif breytinganna á réttaröryggi beggja aðila vinnuréttarsambandsins verði metin til hlítar áður en frumvarpið verður lagt fram á Alþingi.