Viðskiptaráð Íslands

Virkniúrræði fyrir atvinnuleitendur

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til velferðarnefndar Alþingis vegna tillögu til þingsályktunar um eflingu virkniúrræða fyrir atvinnuleitendur. Viðskiptaráð tekur undir markmið tillögunnar og telur að það sé samfélaginu til hagsbóta að ráðast í umbætur á þessu sviði.

Í umsögninni kemur m.a. eftirfarandi fram:

  • Nýta ætti lagaheimildir sem skylda atvinnuleitendur til að taka þátt í virkniúrræðum og skilyrða ætti greiðslu úr atvinnuleysistryggingasjóði og framfærslu sveitarfélaga við að atvinnuleitendur notfæri sér virkniúrræði við hæfi.
  • Útgjöld vegna fjárhagslegs stuðnings við einstaklinga hafa aukist umtalsvert á undanförnum árum og eru þau umtalsvert hærri hér á landi en á öðrum Norðurlöndum. Munar þar mest um fjölgun einstaklinga sem þiggja örorkulífeyri. 
  • Tillögur frá Samráðsvettvangi um aukna hagsæld á Íslandi voru lagðar fram vorið 2012 og lítið hefur þokast á átt til umbóta í þessum málaflokki. Skortur á forystu veldur óbreyttu fyrirkomulagi en verði breyting á í þeim efnum má færa lífsgæði fjölda einstaklinga til betri vegar.

Umsögnina má í heild sinni nálgast hér (PDF)

Tengt efni

Umsögn um áform um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreind áform. Ráðið fagnar að endurskoðun sé hafin og þeim markmiðum sem stefnt er að með breytingunum.
18. apríl 2024

Umsögn um frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint mál um endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. Ráðið skilaði umsögn við drög að frumvarpi í samráðsgátt …
8. apríl 2024

Umsögn um drög að frumvarpi til laga um loftslags- og orkusjóð

Viðskiptaráð hefur tekið til umsagnar ofangreint frumvarp. Ráðið telur meginefni þess til bóta og að með því séu stigin skref í átt að einfalda …
15. mars 2024

Mikilvægt að virkja atvinnuleitendur

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til velferðarnefndar um frumvarp til breytinga á lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í frumvarpinu er lagt til …
3. mars 2016

Þingsályktunartillaga um mótun viðskiptastefnu Íslands

Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um tillögu til þingsályktunar um mótun viðskiptastefnu Íslands …
6. nóvember 2013

Hagræði fólgið í rafrænni fyrirtækjaskrá

Viðskiptaráð hefur skilað inn umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna frumvarps um rafræna fyrirtækjaskrá sem gera mun einstaklingum …
24. apríl 2017