Viðskiptaráð Íslands

Aðalfundur 2026

Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands fer fram þriðjudaginn 10. febrúar kl. 11:30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fulltrúum allra aðildarfélaga er heimilt að sækja fundinn.

Dagskrá

Dagskrá aðalfundar er samkvæmt 9. grein laga ráðsins:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Reikningar bornir upp til samþykktar
  3. Úrslit formanns- og stjórnarkjörs tilkynnt
  4. Lagabreytingar
  5. Kosning kjörnefndar
  6. Tekju- og gjaldaáætlun kynnt og árgjöld ákvörðuð
  7. Önnur mál

Stjórnarkjör 2026

Stjórn ráðsins er skipuð 38 einstaklingum. Kosning stjórnar er óbundin þannig að kjörgengir eru allir skuldlausir félagsmenn (stjórnendur í fyrirtækjum sem eiga aðild að Viðskiptaráði). Kjörseðlar verða sendir út með rafrænum hætti föstudaginn 22. janúar nk. Ábendingalisti með nöfnum þeirra sem gefa sérstaklega kost á sér til stjórnarsetu (og fylgir kjörseðli) er því aðeins leiðbeinandi.

Framboð til formanns

Formaður stjórnar er kosinn sérstaklega í bundinni kosningu. Framboðsfrestur vegna formannskjörs rennur út 20. janúar.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðslu og önnur aðalfundarstörf fást hjá skrifstofu ráðsins á netfanginu vi@vi.is eða í síma 510-7100.

Tengt efni

Aðalfundur Viðskiptaráðs 2026

Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands fer fram þriðjudaginn 10. febrúar kl. 11:30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Fulltrúum allra aðildarfélaga er …
13. janúar 2026

Viðskiptaráð leitar að hagfræðingi á málefnasvið

Viðskiptaráð leitar að metnaðarfullum einstaklingi til starfa í málefnateymi ráðsins. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér greiningar, …
18. desember 2025

Viðskiptaþing 2025

Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
13. febrúar 2025

Skráning hafin á Viðskiptaþing 2025

Viðskiptaþing 2025 fer fram 13. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
17. janúar 2025

Viðskiptaráð leitar að lögfræðingi á málefnasviði

Viðskiptaráð óskar eftir metnaðarfullum lögfræðingi til starfa á málefnasviði. Starfið felur í sér fjölbreytt og krefjandi verkefni sem miða að því að …
17. desember 2024

Líflegar umræður á Kosningafundi Viðskiptaráðs

Viðskiptaráð efndi til kosningafundar sem fram fór í dag í Hörpu. Líflegar umræður sköpuðust á fundinum en forystufólk stjórnmálaflokkanna ræddi þar …
13. nóvember 2024