Viðskiptaráð Íslands

Chamber Cup 2014 - golfmót

Fimmtudaginn 28. ágúst fer fram hið árlega golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráðanna, International Chamber Cup, á Korpúlfsstaðavelli (Golfklúbbi Reykjavíkur). Ræst verður út milli kl. 13-15.

Allir félagar Amerísk-, Dansk-, Færeysk-, Finnsk-, Fransk-, Þýsk-, Grænlensk-, Ítalsk-, Norsk-, Spænsk- og Sænsk-Íslenska Viðskiptaráðsins, ICC og Viðskiptaráðs Íslands eru velkomnir.

Liðakeppni verður haldin samhliða hinu hefðbundna golfmóti. Einstaklingar sem vilja taka þátt skrá sig sem fulltrúa frá einu tilteknu viðskiptaráði. Athugið að það er ekkert hámark á því hversu margir geta leikið fyrir hvert ráð en lágmarkið eru þrír fulltrúar. Þrjú bestu skorin samkvæmt Stableford skorkerfinu (með forgjöf) telja fyrir hvert ráð. Það ráð sem hefur besta skorið vinnur og tekur með sér heim veglegan farandbikar.

Um mótið:

  • Stableford keppni með forgjöf
  • Einstaklingsverðlaun fyrir 1., 2., 3. og síðasta sæti
  • Chamber Cup liðaverðlaun (sjá að ofan)
  • Aukaverðlaun fyrir lægsta skorið í höggleik
  • Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins
  • Verðlaun fyrir bestu nýtnina á vellinum
  • Verð fyrir golf og mat er 9.900 kr. á mann (5.000 kr. ef annað hvort er valið).

Nánari upplýsingar veitir Kristín S. Hjálmtýsdóttir

Skráning hér

Tengt efni

Samkeppnishæfni Íslands 2024

Morgunfundur um niðurstöður nýrrar úttektar IMD á samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegum samanburði. Fundurinn fer fram fimmtudaginn 20. júní 2024 í …
20. júní 2024

International Chamber Cup 2015

Miðvikudaginn 26. ágúst fer fram hið árlega golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráðanna, International Chamber Cup, á Korpúlfsstaðavelli (Golfklúbbi …
26. ágúst 2015

International Chamber Cup

Fimmtudaginn 30. ágúst fer fram hið árlega golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráðanna, International Chamber Cup. Mótið er haldið í Grafarholti hjá …
30. ágúst 2012

Alþjóðlegt golfmót

Þann 1. september 2011 fer fram hið árlega golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráðanna, International Chamber Cup. Mótið er haldið í Grafarholti hjá …

International Chamber Cup

Fimmtudaginn 29. ágúst verður hið árlega golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráðanna, International Chamber Cup, haldið á golfvellinum Keili í …
29. ágúst 2013

Árlegt golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráða

Fimmtudaginn 29. ágúst verður hið árlega golfmót Viðskiptaráðs og millilandaráðanna, International Chamber Cup, haldið á golfvellinum Keili í …
20. júlí 2013