Viðskiptaráð Íslands

GLIS og FOIS: Vestnorræna hagkerfið

Þriðjudaginn 26. maí nk. fer fram morgunverðarfundur um aukin viðskipti milli Íslands, Grænlands og Færeyja. Að fundinum standa Norðurslóða-viðskiptaráðið, Grænlensk-íslenska viðskiptaráðið (GLIS), Færeysk-íslenska viðskiptaráðið (FOIS) og Vestnorræna ráðið.

Á fundinum verður rætt um hugmyndir þess efnis að treysta frekar bönd þessara landa með aukinni fríverslun, sameiginleg einkenni þeirra og umfang vestnorræna hagkerfisins. Þá verður fjallað um samstarf íslenskra fyrirtækja við fyrirtæki í Grænlandi og í Færeyjum, hvaða áskoranir eru einna helst fyrir hendi í þeim atvinnugreinum og hvaða tækifæri eru til að gera betur.

Dagskrá fundarins:
Ávinningur af auknu samstarfi vestnorrænu ríkjanna
Unnur Brá Konráðsdóttir, varaformaður Vestnorræna ráðsins

Viðskiptasamstarf og milliríkjasamningar
Högni S. Kristjánsson, skrifstofustjóri hjá utanríkisráðuneytinu

Dæmisögur af samstarfi fyrirtækja
Fulltrúar Deloitte, Eimskipa, Íslenskra aðalverktaka, Odda, Norðlenska og Norðurflugs

Pallborðsumræður allra ræðumanna
Fundarstjóri: Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri GLÍS og FOIS

Fundurinn fer fram í Borgartúni 35, 1. hæð (Kvika). Boðið verður upp á léttar veitingar frá kl. 8.00 en fundurinn hefst kl. 8.30 og stendur til kl. 10.00. Aðgangseyrir er 1.500 kr. og fer fundurinn fram á íslensku.

Skráning hér

Tengt efni

Morgunverðarfundur um inngrip stjórnvalda á mörkuðum

Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins standa að morgunverðarfundi um inngrip stjórnvalda á mörkuðum á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 26. …
20. apríl 2016

Beina brautin: Fyrirtækin taki frumkvæðið

Þriðjudaginn 22. mars næstkomandi standa Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Félag atvinnurekenda, efnahags- og …

Morgunverðarfundur: Framtíðaruppbygging atvinnuvega á Íslandi

Þriðjudaginn 31. ágúst munu Viðskiptaráð Íslands, Sendiráð Japans á Íslandi, Háskólinn í Reykjavík og japönsk fræði við Háskóla Íslands standa fyrir …
19. ágúst 2010

Í fótspor Leifs Eiríkssonar - landvinningar í viðskiptum

Amerísk-íslenska viðskiptaráðið býður til morgunverðarfundar þann 9. október næstkomandi klukkan 8.15-10.00. Á fundinum munu áhugaverðir fyrirlesarar …
9. október 2012

Morgunverðarfundur: Íslenskt mál í viðskiptalífinu

Íslensk málnefnd, Viðskiptaráð Íslands, Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga og viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík boða til morgunverðarfundar um …
16. september 2008

Tölum um tilnefningarnefndir

Viðskiptaráð Íslands, Nasdaq Iceland og Samtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar um tilnefningarnefndir.
10. janúar 2019