Peningamálafundur Viðskiptaráðs er áformaður fimmtudaginn 6. febrúar 2025 frá kl. 8:30 til 10:00 í Háteigi á Grand Hótel Reykjavík. Léttur morgunverður frá kl. 8:00.
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, flytur meginerindi fundarins. Þá mun Andri Þór Guðmundsson, formaður Viðskiptaráðs, flytja opnunarávarp. Að loknum erindum fara fram pallborðsumræður með þátttakendum á fjármálamarkaði.
Fundurinn er haldinn í kjölfar vaxtaákvörðunar, útgáfu Peningamála og nýrrar þjóðhagsspár Seðlabanka Íslands degi áður. Þátttakendur í pallborði verða kynntir þegar nær dregur.