Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaspjall við Magnús Sverri

Magnús Sverrir Þorsteinsson, forstjóri og einn eigenda Blue Car Rental, tekur þátt í Viðskiptaspjalli Kjarvals, FVH og Viðskiptaráðs.

Magnús Sverrir Þorsteinsson, forstjóri Blue Car Rental.

Fyrsti gestur vetrarins í Viðskiptaspjalli Kjarvals, FVH og Viðskiptaráðs er Magnús Sverrir Þorsteinsson, forstjóri og einn eigenda Blue Car Rental. Viðburðurinn fer fram á Vinnustofu Kjarvals þann 6. október næstkomandi og hefst kl. 17:00.

Magnús hóf rekstur ungur með aðeins fimm bíla. Í dag stýrir hann einni stærstu bílaleigu landsins með yfir tvö þúsund bíla í flotanum og sinnir samhliða öðrum fjárfestingum.

Magnús hefur lýst sjálfum sér sem góðum í mörgu en frábærum í engu. Hann er stoltur af því að hafa greitt háa skatta í gegnum tíðina. Þá hefur hann vakið athygli á landsvísu sem einn forsvarsmanna Góðgerðafestar Blue Car Rental, sem hefur safnað yfir 100 milljónum króna á síðustu fimm árum.

Í spjallinu verður farið yfir ferilinn, hraðan vöxt fyrirtækisins, áskoranir í ferðaþjónustu, fótbolta, Góðgerðafest og margt fleira.

Aðgangur er ókeypis fyrir félagsmenn FVH, aðildarfélög Viðskiptaráðs og meðlimi Kjarvals.

Tengt efni

Viðskiptaspjall við Magnús Sverri

Magnús Sverrir Þorsteinsson, forstjóri og einn eigenda Blue Car Rental, tekur þátt í Viðskiptaspjalli Kjarvals, FVH og Viðskiptaráðs sem fram fer 6. …
25. september 2026

Handan þokunnar - Staða og horfur í atvinnulífi á Austurlandi

Viðskiptaráð heldur opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl kl 17:00.
9. apríl 2026

Viðskiptaspjall við Andra Þór Guðmundsson

Andri mætir í Viðskiptaspjall Kjarval, FVH og Viðskiptaráðs, þriðjudaginn 24. mars kl. 17:00 á Vinnustofu Kjarvals
24. mars 2026

Handan þokunnar - fundur á Egilsstöðum

Viðskiptaráð heldur opinn fund á Hótel Héraði á Egilsstöðum fimmtudaginn 9. apríl kl 17:00. Auður Vala Gunnarsdóttir hjá Blábjörg, Hlöðver Hlöðversson …
1. apríl 2026

Viðskiptaþing 2026

Viðskiptaþing 2026 fer fram 12. febrúar í Borgarleikhúsinu og er einn stærsti viðburður ársins í íslensku viðskiptalífi.
12. febrúar 2026

Viðskiptaspjallið með Jóni Sigurðssyni

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, mætir í Viðskiptaspjall Kjarval, FVH og Viðskiptaráðs þann 13. nóvember. Viðburðurinn fer fram á Vinnustofu Kjarval.
13. nóvember 2025