Viðskiptaráð Íslands

Viðskiptaspjall við Ásdísi Kristjánsdóttur

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur ársins 2025, tekur þátt í Viðskiptaspjalli Kjarvals, FVH og Viðskiptaráðs sem fram fer 25. nóvember næstkomandi.

Næsti gestur í Viðskiptaspjalli FVH, Kjarvals og Viðskiptaráðs er Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og hagfræðingur ársins 2025. Viðburðurinn fer fram á Vinnustofu Kjarvals miðvikudaginn 25. nóvember næstkomandi og hefst kl. 17:00. Aðgangur er ókeypis.

Ásdís hefur unnið að umfangsmiklum breytingum sem bæjarstjóri undanfarin ár. Má þar nefna róttækar aðgerðir á skipulagi leikskólamála, hagræðingu í rekstri bæjarins, lækkun fasteignaskatta og nú síðast sýnt frumkvæði í baráttu við verðbólgu með þaki á gjaldskrárhækkanir sem aðrir aðilar hafa fylgt í kjölfarið.

Ásdís hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi, meðal annars hjá Samtökum atvinnulífsins sem forstöðumaður efnahagssviðs og aðstoðarframkvæmdastjóri samtakanna. Þá hefur hún einnig starfað á fjármálamörkuðum, setið í stjórnum fyrirtækja og gegnt trúnaðarstörfum fyrir stjórnvöld. Hún hefur verið sýnileg í þjóðfélagsumræðu um efnahagsmál, verið rödd fyrir umbætur og lagt sitt af mörkum til skýrari stefnumótunar, jafnt fyrir opinbera aðila sem atvinnulífið í heild.

Ásdís hefur lýst sjálfri sér sem metnaðarfullri keppnismanneskju sem gangi í öll verk á þeim forsendum að leysa þurfi vandamál og yfirstíga hindranir.

Við ræðum um ferilinn, sigra jafnt sem áskoranir, gusur, golf og framtíðarsýn fyrir íslenskt atvinnulíf. Léttar veitingar í boði og skemmtileg stemning.

Tengt efni

Ræðumenn á Peningamálafundi Viðskiptaráðs 2026

Hagkerfi í ölduróti: Peningamálafundur 2026

Peningamálafundur Viðskiptaráðs fer fram á Parliament Hotel fimmtudaginn 19. nóvember. Fundurinn er haldinn í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabankans, …
5. nóvember 2026

Viðskiptaspjall við Andra Þór Guðmundsson

Andri mætir í Viðskiptaspjall Kjarval, FVH og Viðskiptaráðs, þriðjudaginn 24. mars kl. 17:00 á Vinnustofu Kjarvals
24. mars 2026

Vaxtaverkir og hagstjórn: Peningamálafundur 2025

Árlegur Peningamálafundar Viðskiptaráðs verður haldinn 27. nóvember 2025. Fundurinn hefst kl. 8:30 og fer fram í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel.
21. nóvember 2025

Peningamálafundur 2025

Árlegur Peningamálafundar Viðskiptaráðs verður haldinn 27. nóvember 2025. Fundurinn hefst kl. 8:30 og fer fram í Sjálfstæðissalnum á Parliament Hotel.
27. nóvember 2025

Vaxandi norðanátt: opinn fundur á Akureyri

Viðskiptaráð stendur fyrir opnum fundi með fulltrúum atvinnulífs og stjórnvalda á Norðurlandi þann 20. nóvember hjá Drift EA á Akureyri.
20. nóvember 2025