Viðskiptaráð Íslands

Vegna ríkisábyrgðar á Icesave skuldbindingum

Allt frá bankahruni hefur mikil umræða átt sérstað um ríkisábyrgð á skuldbindingum vegna Icesave innlánsreikninganna Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Tvívegis hafa lög verið samþykkt frá Alþingi en þrátt fyrir það er deilan óleyst. Eins og kynnt hefur verið liggja nú fyrir samningsdrög á milli Tryggingasjóðs innistæðueiganda og íslenska ríkisins við Bretland annars vegar og Holland hins vegar. Umtalsverður árangur hefur náðst miðað við fyrri samninga auk þess sem betri endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans dragi úr mögulegum skuldbindingum ríkissjóðs vegna Icesave. Afar ólíklegt er talið að lengra verði farið í samningaviðræðum auk þess sem ólíklegt er að Bretar og Hollendingar vilji setjast að samningaborðinu með Íslendingum í fjórða sinn.

Hvort sem menn telja ríkissjóð bera lagalega ábyrgð á skuldbindingum tengdum Icesave reikningum Landsbankans þá draga samningar úr óvissu í efnahagslífinu sem stuðlar að skjótari bata hagkerfisins. Með því er ekki verið að taka afstöðu hvort ríkissjóði beri skylda til þess að veita ríkisábyrgð á skuld Tryggingarsjóðs innstæðueigenda. Heldur er horft til þess að kostnaðar sem fylgir núverandi samningum annars vegar og hins vegar þeirri óvissu og mögulega kostnaði sem gæti fallið á íslenska ríkið fari málið fyrir dómsstóla. Úrlausn þessa deilumáls er mikils virði fyrir uppbyggingu atvinnulífs hér á landi á komandi árum.

Nú liggur fyrir að meirihluti er á þingi til að samþykkja fyrirliggjandi frumvarp um Icesave. Sú niðurstaða væri að mati Viðskiptaráð Íslands ábyrg og hvetur ráðið ríkisstjórn og stjórnarandstöðu eindregið til að leysa það vonda mál sem Icesave er, hratt og örugglega. Um leið verður að tryggja að einkafyrirtæki geti aldrei aftur skuldbundið skattgreiðendur með þeim hætti sem átti sér stað með Icesave innlánsreikningunum.

Áframhaldandi óvissa um lyktir Icesave deilunnar er endurreisn hagkerfisins ekki til framdráttar og með málið í baksýnisspeglinum gefst stjórnvöldum færi á að veita öðrum og uppbyggilegri viðfangsefnum athygli. Af nógu er að taka.

Framkvæmdastjórn Viðskiptaráðs Íslands 

  • Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri ráðsins í síma 510-7100.

Tengt efni

Staðan gagnvart Bretlandi

Miklir hnökrar hafa verið á greiðslum milli Íslands og Bretlands síðan bresk yfirvöld tóku ákvörðun um að frysta eignir Landsbankans þar í landi. Í …
21. október 2008

Að borga eða ekki að borga

Meginþorra þeirra erlendu skulda sem bíða enn úrlausnar í kjölfar bankahrunsins má skipta í tvennt. Annars vegar er um að ræða skuldbindingar vegna …
18. febrúar 2009

Upplýsingaskjal á ensku vegna Icesave

Í kjölfar ákvörðunar forseta Íslands um að synja staðfestingu á lögum nr. 96/2009, svokölluðum Icesave-lögum, hefur átt sér stað talsverð umfjöllun um …
12. janúar 2010

Vaxtaákvörðun: Að eltast við endann á regnboganum

Þó svo ákvörðun SÍ valdi verulegum vonbrigðum, þá kemur hún ekki sérlega á óvart. Illa hefur gengið að afgreiða mikilvæg mál sem eru forsenda …
24. september 2009

Höggva þarf á hnútinn: Uppgjör þrotabúa föllnu bankanna

Afnám gjaldeyrishafta hefur dregist verulega umfram það sem upphaflegar væntingar stóðu til. Þar vegur þyngst sú töf sem orðið hefur á uppgjöri …
18. júní 2014

Gjaldeyrismál

Staðan á gjaldeyrismarkaði er lítið breytt og er temprun gjaldeyrisútflæðis enn við lýði. Bankarnir þrír geta að einherju leyti sinnt erlendri …
31. október 2008