Viðskiptaráð Íslands

Beina brautin: Eyðum óvissu vegna gengistryggðra lána

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, ræddi í morgun um gengistryggð lán á sameiginlegum fundi um Beinu brautina á Grand hótel. Að fundinum stóðu Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja, Félag atvinnurekenda, efnahags- og viðskiptaráðuneytið og fjármálaráðuneytið, en markmiðið var að ræða framvindu Beinu brautarinnar og stöðu fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja innan bankakerfisins.

Fjármálafyrirtæki útvegi fyrirtækjum endurútreikning
Almar rifjaði það upp að FA hafi fyrir sléttum níu mánuðum lagt til að flýtt yrði meðferð mála er varða gengistryggð lán í dómskerfinu. Því miður hafi lítið áunnist frá þeim tíma, sem hefur tafið ferli endurskipulagningar fyrirtækja og heimila um of. Nokkrir Hæstaréttardómar hafa þó fallið síðustu vikurnar sem skýri myndina talsvert og þar sé að meginstefnu til fylgt þeim fordæmum sem gefin voru síðastliðið haust í tengslum við einstaklingslán. Lagði Almar á það áherslu að fjármálafyrirtækin útveguðu fyrirtækjum endurútreikning á sínum lánum m.v. niðurstöður Hæstaréttar og nýlegar breytingar á lögum. Hann telur vanhöld vera á því þrátt fyrir að Beinu brautar samkomulagið kveði skýrt á um slíkan útreikning.

Í erindi sínu fór Almar jafnframt yfir það hvernig unnt verði að eyða eða lágmarka óvissu tengda gengislánum. Sagði hann opinbera aðila þurfa annars vegar að flýta meðferð slíkra mála í dómskerfinu og hins vegar að upplýsa um flokkun gengistryggðra lána m.t.t. ólögmætis. Fjármálafyrirtækin ættu að leggja fram skriflega endurútreikninga og fyrirtækin ættu að fara strax í ferli gagnvart sínum banka með aðstoð ráðgjafa. Betri réttur væri ávallt tryggður og fyrirtækin því að skapa sér valkost með að fara strax í Beinu brautina.

Pallborðsumræður um Beinu brautina
Auk Almars tóku til máls Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra og Finnur Oddsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Í pallborðsumræðum tóku þátt þeir Piero Segatta framkvæmdastjóri Pústþjónustu BJB, Pétur Sigurðsson framkvæmdastjóri Sólrúnar á Árskógssandi í Eyjafirði og Helgi Sigurðsson framkvæmdastjóri Bílaþvottastöðvarinnar Löðurs, en fyrirtæki þeirra hafa öll farið í gegnum Beinu brautina. Í pallborði fjármálafyrirtækja sátu Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Endurskipulagningar eigna hjá Landsbankanum, Halldór Bjarkar Lúðvígsson framkvæmdastjóri fyrirtækjaþjónustu hjá Arion og Una Steinsdóttir framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.

Tengt efni:

Tengt efni

Beina brautin: Eyðum óvissu vegna gengistryggðra lána

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, ræddi í morgun um gengistryggð lán á sameiginlegum fundi um Beinu brautina á Grand hótel. …

Beina brautin: fyrirtækin taki af skarið

Mikilvægt er að forsvarsmenn fyrirtækja í skuldavanda leiti lausna í samstarfi við sína fjármálastofnun. Þetta kom fram á upplýsingafundi sem fram fór …
24. mars 2011

Peningamálafundur Viðskiptaráðs: Ísland ekki í skuldavanda

Í morgun fór fram árlegur peningamálafundur Viðskiptaráðs Íslands á Hilton Reykjavík Nordica. Aðalræðumaður fundarins var Már Guðmundsson …
16. nóvember 2012

Gagnleg umræða um áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja

Í morgun hélt Viðskiptaráð Íslands fjölsóttan morgunverðarfund á Grand Hótel til að ræða áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja og leiðir til …
26. nóvember 2009

Fyrirtækin á beinu brautina

Á föstudag fór fram opinn fundur á Grand Hótel þar sem samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja var kynnt stjórnendum. …
20. desember 2010

Fyrirtækin á beinu brautina

Á föstudag fór fram opinn fundur á Grand Hótel þar sem samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja var kynnt stjórnendum. …
20. desember 2010