Viðskiptaráð Íslands

IMD samkeppnishæfni: Tilefni til hóflegrar bjartsýni

IMD viðskiptaháskólinn metur árlega samkeppnishæfi  um 60 landa og hefur Ísland verið á þessum lista frá árinu 1997. Ef gengi Íslands á tímabilinu er skoðað má sjá áhugaverða þróun. Frá árinu 1997 til 2000 batnaði samkeppnishæfni landsins umtalsvert og var sú framför drifin áfram af betri efnahagslegri frammistöðu og endurbótum hjá hinu opinbera, til dæmis einföldunum á skattkerfinu og skattalækkunum. Í kjölfarið batnaði efnahagsleg frammistaða landsins og við tók hagvaxtartímabil frá árinu 2000 til 2008 þar sem Ísland var stöðugt í fremstu röð ríkja hvað varðar samkeppnishæfni og lífskjör bötnuðu hratt.

2011.05.20 timalina

Þessi sögulega þróun gefur tilefni til hóflegrar bjartsýni. Bankahrunið hafði veruleg neikvæð áhrif á efnahagslega frammistöðu vegna áfalla hjá hinu opinbera og í atvinnulífið. Skilvirkni hins opinbera hefur þó miðað í rétta átt síðastliðið ár en er þó lægri en skilvirkni einkageirans. Raunar hefur skilvirknin hérlendis ætíð mælst hlutfallslega meiri innan einkageirans en hins opinbera í könnun IMD.

Áhyggjuefni er þó hvernig atvinnulífið situr eftir þegar þróunin á milli ára er skoðuð. Vegur þar þyngst að rekstrarumhverfi fyrirtækja hefur síst batnað frá hruni, með hærri sköttum, fjármögnunarerfiðleikum, hárri skuldastöðu og takmarkaðra aðgengi að alþjóðlegum mörkuðum. Ljóst er lykill að aukinni samkeppnishæfni og um leið lífskjörum felst í umbótum á rekstrarumhverfi fyrirtækja.  Í þeim efnum er Ísland ekkert frábrugðið öðrum löndum sem hafa unnið sig úr efnahagskreppum.  Það verður eingöngu gert á forsendum almenns atvinnulífs.

Saga Íslands undanfarin ár og sterkir samfélagslegir innviðir sýna að landið á heima meðal samkeppnishæfustu þjóða heims. Sé rétt haldið á spilunum verður sú efnahagslægð sem nú ríkir tímabundin enda hefur íslenska hagkerfið alla burði til að vinna sig út úr lægðinni og ná fyrri stöðu meðal þjóða heims.

IMD viðskiptaháskólinn í Sviss hefur starfrækt rannsóknarstofnun um samkeppnishæfni þjóða heims frá árinu 1989. Stofnunin metur árlega samkeppnishæfi um 60 landa með það að leiðarljósi að gefa stjórnvöldum, fyrirtækjum og stofnunum upplýsingar um styrkleika og veikleika hagkerfanna. Nánari upplýsingar um niðurstöður könnunarinnar má nálgast á www.vi.is/imd

Tengt efni

Lægri skattar og sjálfbær ríkisfjármál bæta samkeppnishæfni Íslands

Undanfarinn áratug hefur samkeppnishæfni Íslands smám saman batnað, en fyrir tíu árum sat Ísland í 25. sæti. Litlar framfarir hafa þó orðið síðustu …
21. júní 2024

IMD samkeppnishæfni: Tilefni til hóflegrar bjartsýni

IMD viðskiptaháskólinn metur árlega samkeppnishæfi um 60 landa og hefur Ísland verið á þessum lista frá árinu 1997. Ef gengi Íslands á tímabilinu er …

Samkeppnishæfni batnar milli ára

Ísland hækkar um fimm sæti milli ára í nýrri könnun IMD viðskiptaháskólans í Sviss um samkeppnishæfni þjóða og færist úr 31. í 26. sæti af þeim 59 …

Ísland hækkar á lista stafrænnar samkeppnishæfni

Ísland hækkar um tvö sæti í úttekt IMD viðskiptaháskólans á stafrænni samkeppnishæfni og fer því úr 23. og upp í 21. sæti af 63. Frá 2014 hefur Ísland …
19. júní 2018

Bætt samkeppnishæfni Íslands

Niðurstaða úttektar IMD viðskiptaháskólans á samkeppnishæfni þjóða var kynnt á fundi í Hörpu í dag. Ísland hækkar um eitt sæti á listanum og situr nú …
28. maí 2015

Samkeppnishæfni Íslands eykst á árinu 2022

Ísland bætir samkeppnishæfni sína og færist upp í 16. sæti samkvæmt greiningu IMD
15. júní 2022