Viðskiptaráð Íslands

Samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi

Viðskiptaráð hefur allt frá árinu 2002 tekið þátt í og haft umsjón með vefkönnun og gagnavinnslu fyrir IMD viðskiptaháskólann í Sviss vegna úttektar háskólans á samkeppnishæfni landa. Úttektin hefur verið gerð frá því 1989 og í dag spannar könnunin um 330 mælikvarða á samkeppnishæfni landa.

Úttektin sýnir að Ísland hefur fallið í samkeppnishæfni frá árinu 2007 og náði botninum 2011 þegar það skipaði 31. sæti listans. Í síðustu úttekt skipaði Ísland 26. sæti listans sem m.a. má rekja til viðsnúnings í efnahagslífinu. Ísland á þó langt í land til að ná fyrri stöðu ásamt því að standa hinum Norðurlöndunum mun aftar, en Svíþjóð skipar fimmta sæti listans, Noregur það áttunda og Danmörk þrettánda.

Úttekt IMD hefur mikið gildi fyrir þær þjóðir sem taka þátt í úttektinni til að sjá hvar þær standa og hvaða þætti þarf að bæta til auka samkeppnishæfni. Niðurstöður úttektarinnar fyrir árið 2012 verða kynntar í lok maí.

Tengt efni

Samkeppnishæfni Íslands í alþjóðlegu samhengi

Viðskiptaráð hefur allt frá árinu 2002 tekið þátt í og haft umsjón með vefkönnun og gagnavinnslu fyrir IMD viðskiptaháskólann í Sviss vegna úttektar …
15. apríl 2013

Könnun IMD um samkeppnishæfni þjóða

Undanfarin ár hefur Viðskiptaráð Íslands haft umsjón með vefkönnun og gagnavinnslu fyrir viðskiptaháskólann IMD vegna árlegrar úttektar skólans á …
18. maí 2008

Kynning á samkeppnishæfniúttekt IMD 2023

Kynning Viðskiptaráðs á niðurstöðum samkeppnishæfniúttektar IMD háskóla
20. júní 2023

Alþjóðabankinn skýtur stoðum undir niðurstöður Viðskiptaráðs og IMD

Viðskiptaráð Íslands kynnti fyrr á árinu í samstarfi við Íslandsbanka niðurstöður könnunar IMD-viðskiptaháskólans í Sviss á samkeppnishæfni þjóða …
15. september 2005

Getur stefnumótun bætt samkeppnishæfni Íslands?

Viðskiptaháskólinn IMD í Sviss hefur gert árlega úttekt á samkeppnishæfni ríkja frá árinu 1989. Niðurstöðurnar fyrir árið 2015 voru birtar í síðustu …
5. júní 2015

Blaðamannafundur um IMD niðurstöður

Síðustu ár hefur Viðskiptaráð í samstarfi við Íslandsbanka kynnt niðurstöður samkeppnishæfniúttektar IMD viðskiptaháskólans í Sviss. Af því tilefni …
24. maí 2018