Viðskiptaráð Íslands

Halla Tómasdóttir ráðin framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs

Framkvæmdastjórn Viðskiptaráðs Íslands hefur ráðið Höllu Tómasdóttur sem framkvæmdastjóra ráðsins frá
1. mars n.k.  Hún tekur við starfinu af Þór Sigfússyni, sem nýlega var ráðinn forstjóri Sjóva.

Halla lauk BS-gráðu í viðskiptafræði frá Auburn háskólanum í Montgomery í Bandaríkjunum og MBA gráðu í alþjóðlegum viðskiptum frá Garvin Graduate School of International Management (Thunderbird). Undanfarin tvö ár hefur Halla stundað doktorsnám í viðskiptafræði við Cranfield háskólann í Bretlandi.

Halla hefur víðtæka reynslu af stjórnunarráðgjöf og kennslu fyrir innlend og erlend fyrirtæki. Hún stýrði stjórnendaskóla HR frá stofnun og gegndi framkvæmdastjórastöðu átaksins Auður í krafti kvenna, samhliða því sem hún var lektor við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Halla hefur setið í stjórn Vistor hf. og Calidris ehf. frá árinu 2002  og sat í stjórn Sjóvá frá 2004-2005.

Á árunum 1994-1996 starfaði Halla sem starfsmannastjóri hjá Mars Inc. í Bandaríkjunum og frá 1996-1998 gegndi hún starfsmannastjórastöðu hjá Pepsi Cola áður en hún réði sig sem starfsmannastjóra Íslenska útvarpsfélagsins árið 1998 og gegndi þeirri stöðu til ársins 1999 þegar hún gekk til liðs við Háskólann í Reykjavík.

Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair og formaður stjórnar Viðskiptaráðs: „Við erum afar ánægð með ráðninguna. Skarð Þórs Sigfússonar er vandfyllt en við erum sannfærð um að reynsla Höllu af alþjóðlegu viðskiptaumhverfi muni skila sér í auknum slagkrafti ráðsins á næstu misserum.“

 Halla Tómasdóttir: „Ég lít á þetta sem frábært tækifæri.  Vöxtur íslensks viðskiptalífs hefur verið mikill undanfarin ár og verkefni Viðskiptaráðsins aldrei mikilvægari.  Viðskiptaráðið stofnaði og er bakhjarl bæði Verslunarskólans og Háskólans í Reykjavík, en verkefni þessara skóla hefur verið að útskrifa hæfileikaríkt athafnafólk sem er lykilþáttur í auknum tækifærum og vexti viðskiptalífsins.  Þá er Viðskiptaráðið vettvangur nýrra hugmynda um þróun íslensks viðskiptaumhverfis og mikilvægt að tryggja að rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi verði eins og best er á kosið til að tryggja áframhaldandi atvinnusköpun og hagsæld í landinu.“

Tengt efni

Halla Tómasdóttir ráðin framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs

Framkvæmdastjórn Viðskiptaráðs Íslands hefur ráðið Höllu Tómasdóttur sem framkvæmdastjóra ráðsins frá
4. janúar 2006

Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir ráðin forstöðumaður Alþjóðasviðs

Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir hefur verið ráðin sem forstöðumaður Alþjóðasviðs Viðskiptaráðs Íslands.
21. júlí 2017

Marta Guðrún Blöndal ráðin lögfræðingur Viðskiptaráðs

Marta Guðrún Blöndal hefur verið ráðin sem lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Marta mun sinna lögfræðilegri ráðgjöf gagnvart framkvæmdastjóra og …
1. apríl 2014

Marta Guðrún Blöndal ráðin lögfræðingur Viðskiptaráðs

Marta Guðrún Blöndal hefur verið ráðin sem lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Marta mun sinna lögfræðilegri ráðgjöf gagnvart framkvæmdastjóra og …
1. apríl 2014

Arna Harðardóttir ráðin til Viðskiptaráðs

Arna Harðardóttir hefur verið ráðin til Viðskiptaráðs Íslands. Hún mun starfa sem fjármálastjóri Viðskiptaráðs og Sjálfseignarstofnunar Viðskiptaráðs …
19. janúar 2007

Svanhildur nýr framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands

Viðskiptaráð Íslands hefur ráðið Svanhildi Hólm Valsdóttur í starf framkvæmdastjóra.
9. október 2020