Viðskiptaráð Íslands

Aðild að ESB skilyrði Samfylkingar

Meðal þess sem forsvarsmenn stjórnmálaflokkanna ræddu um á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í dag var möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu. Athygli vakti að Ágúst Ólafur Ágústsson hjá Samfylkingunni sagði að aðild að ESB yrði líklega skilyrði flokksins fyrir samstarfi í ríkisstjórn eftir kosningar. Steingrímur J. Sigfússon hjá Vinstri grænum lýsti furðu á þessari kröfu samfylkingar, og sagði ákvörðun um ESB krefjast vandaðs mat á heildarhagsmunum þjóðarinnar. Þá lýsti Sigmundur Davíð Gunnlaugsson því yfir að stefna Framsóknarflokksins í evrópumálum væri skýr: Upptaka evru og aðild að ESB.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hjá Sjálfstæðisflokknum sagði ljóst að þjóðin þyrfti að kjósa um aðild að ESB. Guðsjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslyndra tók í sama streng, en lagði þunga áherslu á að Ísland héldi áfram yfirráðum yfir auðlindum sínum.

Tengt efni

Rætt um ESB við eina stærstu sjónvarpsstöð Póllands

Björn Brynjúfur, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, ræddi við Polsat um Evrópumál og afstöðu Íslands til Evrópusambandsins.
5. febrúar 2026

Aðild að ESB skilyrði Samfylkingar

Meðal þess sem forsvarsmenn stjórnmálaflokkanna ræddu um á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í dag var möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu. Athygli …
12. mars 2009

Einhugur um aðild að ESB

Fulltrúar viðskiptalífsins voru einhuga í afstöðu sinni til Evrópusambandsins í pallborðsumræðum á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, sem fór fram í dag á …
12. mars 2009

Ályktun stjórnar Viðskiptaráðs Íslands um aðild Íslands að Evrópusambandinu

Vegna núverandi efnhagsaðstæðna og mikilvægi þess að sem fyrst verði komið á meiri vissu um framtíðarskipan peningamála hefur stjórn Viðskiptaráðs …
15. desember 2008

Vinna hafin við úttekt á stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið

Í lok september sl. var tilkynnt að Alþýðusamband Íslands, Félag atvinnurekenda, Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð Íslands hygðust standa fyrir …
22. nóvember 2013

Hver er staðan á ESB viðræðunum?

Hvað þýðir hugsanleg aðild Íslands að Evrópusambandinu? Framsal auðlinda eða loforð um lága verðbólgu? Er aðild ávísun á fullveldisframsal eða aukin …
18. nóvember 2011