Viðskiptaráð Íslands

Góð þátttaka á Viðskiptaþingi 2009

Á fjórða hundrað manns voru viðstaddir árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands, sem haldið var í gær á Reykjavík Hilton Nordica. Yfirskrift þingsins var „Endurreisn Hagkerfisins“ og meðal gesta voru lykilmenn úr íslensku Viðskiptalífi, ráðherrar, þingmenn, embættismenn og erlendir sendiherrar.

Erindi héldu  Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, Erlendur Hjaltason formaður Viðskiptaráðs og Dr. Pedro Videla prófessor í hagfræði við IESE viðskiptaháskólann í Barcelona. Þá afhenti Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra námsstyrki Viðskiptaráðs, en fjórir framúrskarnandi nemendur í framhaldsnámi á háskólastigi hlutu styrk að fjárhæð 350 þúsund krónur hver.

Að loknum framsögum ræddu fulltrúar stjórnmálaflokkanna um áherslur til framtíðar, en þar tóku þátt þau Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, Sigmunur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknaflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar og Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins. Að því loknu ræddu þau Jón Sigurðsson forstjóri Össurar, Kristín Pétursdóttir forstjóri Auðar Capital, Svava Grönfeldt rektor Háskólans í Reykjavík, Tómas Már Sigurðsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls og Vilhjálmur Þorsteinsson stjórnarformaður CCP, um viðhorf og viðbrögð viðskiptalífsins.

Setningarræðu Erlendar Hjaltasonar má nálgast hér .

Erindi Jóhönnu Sigurðardóttur má nálgast hér .

Glærur Pedros Videla má nálgast hér .

Viðskiptaráð Íslands gaf út skýrslu í tengslum við Viðskipaþingið og ber hún heitið „Endurreisn hagkerfisins – horft til framtíðar“. Í skýrslunni er fjallað um mikilvægi þess að líta til framtíðar og fjallað um þær áherslur sem heppilegt er að hafa að leiðarljósi í því endurreisnarstarfi sem framundan er. Skýrsluna er hægt að nálgast rafrænt á vefsíðu Viðskiptaráðs .

Viðskiptaráð þakkar innilega öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við að gera þennan dag eins vel heppnaðan og raun bar vitni. Það er von Viðskiptaráðs að þingið reynist lóð á vogarskálar skjótrar og upplýstrar ákvörðunartöku um eitt mikilvægasta verkefni sem íslenska þjóðin hefur nokkru sinni staðið frammi fyrir: Endurreisn hagkerfisins.

Tengt efni

Góð þátttaka á Viðskiptaþingi 2009

Á fjórða hundrað manns voru viðstaddir árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands, sem haldið var í gær á Reykjavík Hilton Nordica. Yfirskrift …
13. mars 2009

Góð þátttaka á Viðskiptaþingi 2009

Nú þegar hafa tæplega 300 manns skráð sig á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands sem verður haldið núna á fimmtudaginn (12. mars) á Reykjavík …
10. mars 2009

Viðskiptaþing 2014: Fullt hús gesta

Tæplega 450 manns sækja árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs sem stendur nú yfir á Hilton Reykjavík Nordica, en yfirskrift þingsins þetta árið er …
12. febrúar 2014

Mikil þátttaka á Viðskiptaþingi 2008

Yfir 400 manns hafa skráð sig á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands, en skráningu lýkur í dag. Meðal gesta verða lykilmenn í íslensku …
12. febrúar 2008

Mikil þátttaka á Viðskiptaþingi 2008

Yfir 400 manns hafa skráð sig á árlegt Viðskiptaþing Viðskiptaráðs Íslands, en skráningu lýkur í dag. Meðal gesta verða lykilmenn í íslensku …
12. febrúar 2008

Mjög góð þátttaka á Viðskiptaþingi 2008

Metþátttaka og uppselt var á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands. Hátt í 500 gestir mættu, en meðal gesta voru lykilmenn í íslensku …
14. febrúar 2008