Viðskiptaráð Íslands

Morgunverðarfundur með seðlabankastjóra

Föstudaginn 6. nóvember næstkomandi stendur Viðskiptaráð fyrir árlegum morgunverðarfundi í tilefni útgáfu Peningamála Seðlabanka Íslands. Aðalræðumaður á fundinum verður Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sem mun ræða stöðu efnahagsmála og svara spurningum fundargesta að erindi loknu. Í kjölfarið fer fram pallborðsumræða milli fulltrúa Seðlabankans og atvinnulífsins sem og fundargesta, en þar taka til máls:

  • Þórður Friðjónsson, forstjóri NasdaqOMX Ísland
  • Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP
  • Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls og formaður Viðskiptaráðs
  • Margrét Guðmundsdóttir, forstjóri IcePharma
  • Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans

Stefna og aðgerðir Seðlabanka Íslands skipta allt atvinnulíf á Íslandi verulegu máli og verður erindi seðlabankastjóra því án efa áhugavert. Þetta á ekki síst við í ljósi samþykktar AGS á fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands, sem veitti ríkissjóði aðgang að öðrum hluta af lánafyrirgreiðslu AGS sem og aðgang að fyrsta fjórðungi lánafyrirgreiðslu Norðurlandanna og Póllands. Áhrif þessa sáust glögglega um helgina þegar Seðlabankinn ákvað að hefja afléttingu gjaldeyrishafta með því að heimila innstreymi erlends gjaldeyris. Eftir stendur því hvað peningastefnunefnd bankans hyggst gera á næsta vaxtaákvörðunardegi, 5. nóvember næstkomandi.

Fundurinn hefst kl. 8:15 og stendur til kl. 10:00 á Hilton Reykjavík Nordica (Salur H/I). Fundargjald er kr. 3.500 með morgunverði. Fundurinn er öllum opinn.

Tengt efni

Peningamálafundur Viðskiptaráðs

Föstudaginn 6. nóvember stendur Viðskiptaráð fyrir árlegum morgunverðarfundi í tilefni útgáfu Peningamála Seðlabanka Íslands. Aðalræðumaður á fundinum …

Morgunverðarfundur með Seðlabankastjóra

Þriðjudaginn 18. nóvember stendur Viðskiptaráð fyrir árlegum morgunverðarfundi í tilefni útgáfu Peningamála. Þar mun Davíð Oddsson, formaður …
11. nóvember 2008

Morgunverðarfundur um hagstjórnarvandann

Staðsetning: Grand Hótel Reykjavík, Gullteig A kl. 08:15. Peningamál, ársfjórðungsrit Seðlabanka Íslands kemur út 2. desember. Davíð Oddsson …
5. desember 2005

Peningamálafundur 2011 á morgun - Skráningu lýkur í dag

Á morgun, föstudag, kl. 8.15-10 fer fram morgunverðarfundur Viðskiptaráðs í tilefni af útgáfu Peningamála Seðlabankans.
3. nóvember 2011

Föstudagskaffið: Hvað er í alvörunni að gerast á fasteignamarkaðnum?

Næsta Föstudagskaffi Viðskiptaráðs verður föstudaginn 12. nóvember klukkan 9. Þar munu Karlotta Halldórsdóttir, hagfræðingur hjá HMS, og Konráð S. …
8. nóvember 2021