Viðskiptaráð Íslands

Endurskipulagning fyrirtækja & mikilvægi fjárfesta

Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, hélt neðangreint erindi á morgunverðarfundi Íslandsbanka í síðustu viku um mikilvægi fjárfesta í endurreisn hagkerfisins, þar sem hann fór með fundarstjórn:

Fjárfestar gegna stóru hlutverki í endurreisn hagkerfisins, og á það við um stóra jafnt sem smáa, allt frá stofnana- og fagfjárfestum til almennings í landinu. Eftir hremmingar undanfarinna mánaða er hinsvegar ekki nema von að þeir hafi tilhneigingu til að halda að sér höndum og leita sem öruggastra kosta. Þá er núna að finna í skuldabréfum, aðallega ríkis, og innlánum, en nú liggja hátt á annað þúsund milljarðar í innlánum banka og sparisjóða. Gjaldeyrishöft koma í veg fyrir fjárfestingu utan landsteina og markaður með hlutabréf er ekki svipur hjá sjón. 

Um leið er ljóst að forsenda rösklegrar endurreisnar hagkerfisins er þróttmikið og heilbrigt atvinnulíf. Í þeirri endurskipulagningu atvinnulífs sem nú er hafin skortir mikilvægt hráefni, sem er fjármagn. Sem allra fyrst þarf að skapa fjárfestum aðstæður til að koma fjármagni í skilvirkari nýtingu, sérstaklega til fjármögnunar atvinnureksturs. Bæði er þar um að ræða mikilvæga forsendu endurskipulagningar og viðreisnar atvinnulífs en einnig felast þar tækifæri fyrir fjárfesta að ná til baka hluta þess taps sem varð við hrun bankerfisins. Lesa áfram …

Þá fór Finnur jafnframt með fundarstjórn á ráðstefnu KPMG um fjárhagslega endurskipulagningu á rekstri fyrirtækja, erindi hans má nálgast hér.

Tengt efni

Morgunverðarfundur: Endurskipulagning fyrirtækja er flókið ferli

Á fundi Viðskiptaráðs í gærmorgun um áhrif banka á rekstrarumhverfi fyrirtækja fjallaði Ásmundur Stefánsson, forstjóri Landsbankans, um áherslur í …
27. nóvember 2009

Fjárfestingaumhverfið á Íslandi: Erum við á réttri leið?

Á morgun, miðvikudag, stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi um fjárfestingaumhverfið hér á landi. Þar mun Þórður Friðjónsson forstjóri …
23. mars 2010

Morgunverðarfundur: Hlutverk lífeyrissjóða í endurreisninni

Fimmtudaginn 22. október næstkomandi stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica um hlutverk lífeyrissjóðanna í …
21. október 2009

Hlutverk lífeyrissjóða í endurreisninni

Fimmtudaginn 22. október næstkomandi stendur Viðskiptaráð Íslands fyrir morgunverðarfundi á Hilton Reykjavík Nordica um hlutverk lífeyrissjóðanna í …

Morgunverðarfundur: Dugnaðarleysi og ákvörðunarfælni leiðir til stöðnunar

Endurskipulagning eignarhalds fyrirtækja var umfjöllunarefni Finns Sveinbjörnssonar, forstjóra Arion banka, á morgunverðarfundi Viðskiptaráðs í …
27. nóvember 2009

Beina brautin: fyrirtækin taki af skarið

Mikilvægt er að forsvarsmenn fyrirtækja í skuldavanda leiti lausna í samstarfi við sína fjármálastofnun. Þetta kom fram á upplýsingafundi sem fram fór …
24. mars 2011